Fara í efni

Auglýsing sviðsstjóri veitu og framkvæmdasviðs

Málsnúmer 1912057

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar - 895. fundur - 09.01.2020

Hrefna Gerður Björnsdóttir mannauðsstjóri sveitarfélagsins sat fundinn undir þessum dagskrárlið og kynnti að umsóknarfrestur er útrunninn og sex umsóknir hafi borist.
Byggðarráð samþykkir að fela mannauðsstjóra og sveitarstjóra að fá ráðgjafa frá Capacent til að fara yfir umsóknir um starf sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs.

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar - 899. fundur - 29.01.2020

Farið yfir ráðningarferli sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs. Þóra Pétursdóttir ráðgjafi hjá Capacent var í símasambandi við fundarmenn og kynnti niðurstöðu, úrvinnslu og greiningu umsókna að loknum viðtölum við umsækjendur.
Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að ræða við þann aðila sem hæst skoraði af þeim umsækjendum sem boðaðir voru í viðtal.

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar - 900. fundur - 06.02.2020

Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að Steinn Leó Sveinsson verði ráðinn sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs.

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 393. fundur - 12.02.2020

Vísað frá 900. fundi byggðarráðs frá 6. febrúar 2020 til afgreiðslu sveitarstjórnar
Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að Steinn Leó Sveinsson verði ráðinn sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs.

Borið upp til afgreiðslu og samþykkt með níu atkvæðum.