Pálmi Jónsson, yfirhafnarvörður, fór yfir afleiðingar óveðursins þann 10. og 11. desember sl. Togarar FISK Seafood, Málmey og Drangey, voru báðir bundnir við bryggju þessa daga og slitnuðu togvírar og ofurtóg á Drangey í veðurhamnum ásamt því að einn bryggjupolli gaf sig og slitnaði upp úr bryggjukantinum. Hluti áhafnar skipanna ásamt björgunarsveit unnu að því að tryggja landfestar og var sólarhringsvakt á höfninni á meðan veðrið gekk yfir. Há sjávarstaða, áhlaðandi og mikil ölduhæð varð til þess að mikill sjór gekk á land við Skarðseyrina og var Eyrin umflotin frá hringtorgi og suður fyrir FISK Seafood og flæddi meðal annars inn í húsnæði sláturhússins og FISK Seafood. Grjótgarður við Skarðseyri skemmdist töluvert og barst mikið af möl, grjóti og þara inn yfir Skarðseyrina. Í Hofsóshöfn sökk bátur sökum ísingar og sjólags en ekki varð teljandi tjón á smærri bátum á Sauðárkróki.
Umhverfis- og samgöngunefnd þakkar viðbragðsaðilum, starfsmönnum hafnarinnar og áhöfnum skipanna fyrir vel unnin störf í erfiðum aðstæðum og fyrir að koma í veg fyrir stórtjón á skipum, mannvirkjum og fólki. Ljóst er á afleiðingum veðursins að úrbóta er þörf á hafnarsvæðinu, m.a. úrbætur á núverandi hafnarkanti og frekari landvinninga á Eyrinni. Höfninni vantar sárlega dráttarbát sem eykur öryggi í aðstæðum sem þessum og auðveldar alla vinnu við móttöku og brottför stærri skipa.
Há sjávarstaða, áhlaðandi og mikil ölduhæð varð til þess að mikill sjór gekk á land við Skarðseyrina og var Eyrin umflotin frá hringtorgi og suður fyrir FISK Seafood og flæddi meðal annars inn í húsnæði sláturhússins og FISK Seafood. Grjótgarður við Skarðseyri skemmdist töluvert og barst mikið af möl, grjóti og þara inn yfir Skarðseyrina.
Í Hofsóshöfn sökk bátur sökum ísingar og sjólags en ekki varð teljandi tjón á smærri bátum á Sauðárkróki.
Umhverfis- og samgöngunefnd þakkar viðbragðsaðilum, starfsmönnum hafnarinnar og áhöfnum skipanna fyrir vel unnin störf í erfiðum aðstæðum og fyrir að koma í veg fyrir stórtjón á skipum, mannvirkjum og fólki.
Ljóst er á afleiðingum veðursins að úrbóta er þörf á hafnarsvæðinu, m.a. úrbætur á núverandi hafnarkanti og frekari landvinninga á Eyrinni. Höfninni vantar sárlega dráttarbát sem eykur öryggi í aðstæðum sem þessum og auðveldar alla vinnu við móttöku og brottför stærri skipa.