Fara í efni

Byggðarráð Skagafjarðar - 898

Málsnúmer 2001012F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 393. fundur - 12.02.2020

Fundargerð 898. fundar byggðarráðs frá 22. janúar 2020 lögð fram til afgreiðslu á 393. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Stefán Vagn Stefánsson kynnti fundargerð. Laufey Kristín Skúladóttir kvaddi sér hljóðs.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 898 Lagður fram tölvupóstur dagsettur 16. janúar 2020, úr máli 2001213 hjá sýslumannsembætti Norðurlands vestra. Tómas Árdal f.h. Stá ehf., kt.520997-2029, sækir um leyfi til að reka veitingastað KK restaurant í flokki III að Aðalgötu 16, 550 Sauðárkróki.
    Byggðarráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina.
    Bókun fundar Afgreiðsla 898. fundar byggðarráðs staðfest á 393. fundi sveitarstjórnar 12. febrúar 2020 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 898 Lögð fram umsókn frá Oddfellow, Húsfélaginu Víðigrundar 5, dagsett 12. janúar 2020 um lækkun fasteignaskatts 2020 vegna fasteignarinnar F2132365 Víðigrund 5, félagsheimili.
    Byggðarráð samþykkir að fella niður fasteignaskatt af framangreindri fasteign um 30% samkvæmt reglum sveitarfélagsins þar um.
    Bókun fundar Afgreiðsla 898. fundar byggðarráðs staðfest á 393. fundi sveitarstjórnar 12. febrúar 2020 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 898 Lögð voru fyrir tilboð í verkið Leikskóli á Hofsósi. Alls bárust tvö tilboð í verkið;
    Friðrik Jónsson ehf., 188.782.925 kr.
    Uppsteypa ehf., 159.705.806 kr.
    Kostnaðaráætlun verksins hljóðaði upp á 143.007.623 kr.
    Byggðarráð felur sviðstjóra veitu- og framkvæmdasviðs að ganga til samninga við lægstbjóðanda á grundvelli tilboðs hans.
    Bókun fundar Afgreiðsla 898. fundar byggðarráðs staðfest á 393. fundi sveitarstjórnar 12. febrúar 2020 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 898 Lögð fram tvö tilboð í fasteignina Laugarvegur 17, Varmahlíð, F2140812 sem er í eigu Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Akrahrepps.
    Byggðarráð samþykkir fyrir sitt leiti að ganga að hærra tilboðinu frá Ditte Clausen og Frímanni Viktori Sigurðssyni.
    Bókun fundar Afgreiðsla 898. fundar byggðarráðs staðfest á 393. fundi sveitarstjórnar 12. febrúar 2020 með níu atkvæðum.