Fara í efni

Beiðni um kaup á Austurgötu 11 á Hofsósi

Málsnúmer 2002026

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar - 902. fundur - 19.02.2020

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 5. febrúar 2020 frá leigjendum Austurgötu 11 á Hofsósi, Jóhanni Oddgeiri Jóhannssyni og Grétu Dröfn Jónsdóttur. Óska þau eftir fá fasteignina Austurgötu 11 á Hofsósi keypta að undangenginni skoðun og mati fagaðila á ástandi fasteignarinnar.
Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra fá verðmat frá fasteignasala á fasteigninni.

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar - 908. fundur - 01.04.2020

Málið áður á dagskrá 902. fundar byggðarráðs þann 19. febrúar 2020.
Byggðarráð samþykkir að fresta afgreiðslu málsins.

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar - 909. fundur - 08.04.2020

Málið áður á dagskrá 902. fundar byggðarráðs þann 19. febrúar 2020.
Byggðarráð samþykkir að fasteignin verði ekki seld að svo stöddu.