Fara í efni

Skipulags- og byggingarnefnd - 368

Málsnúmer 2003008F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 396. fundur - 01.04.2020

Fundargerð 368. fundar skipulags- og byggingarnefndar frá 24. mars 2020 lögð fram til afgreiðslu á 396. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Regína Valdimarsdóttir, með leyfi varaforseta, kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 368 Börkur Þór Ottósson sviðsstjóri umhverfis- og tæknisviðs Dalvíkurbyggðar óskar, vegna endurskoðunar á aðalskipulagi Dalvíkurbyggar 2008-2020, eftir umsögn um skipulags- og matslýsingu verkefnisins, áfangaskýrsla 1.
    Skipulags- og byggingarnefnd gerir ekki athugasemdir við erindið.
    Bókun fundar Afgreiðsla 368. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 396. fundi sveitarstjórnar 1. apríl 2020 með níu atkvæðum.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 368 Svanbjörn Jón Garðarsson kt. 140350-2659 eigandi að frístundalandi úr landi Neðra-Áss í Hjaltadal, landnúmer 223410, óskar eftir afgreiðslu skipulags- og byggingarnefndar og sveitarstjórnar Sveitarfélagsins Skagafjarðar á eftirfarandi.
    Samþykkt verði stofnun og heiti lóðanna Ásvegur 6 og Ásvegur 9 eins og þær eru sýndar á meðfylgjandi uppdrætti og lóðarblöðum. Lóðin Ásvegur 6 verður 6464 ferm. Lóðin Ásvegur 9 verður 1089 ferm.
    Þá er óskað eftir að skipulags- og byggingarnefnd og sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar samþykki hnitsetta afmörkun og ný heiti lóðanna Neðri- Ás 2 lóð, landnúmer 146479, Neðri-Ás 2 lóð 4 landnúmer 187516 og Neðri-Ás 2 lóð 5 landnúmer 146480.
    Neðri- Ás 2 lóð, landnúmer 146479, verður 4464 ferm og fær heitið Ásvegur 2
    Neðri- Ás 2 lóð 4, landnúmer 187516 er 750 ferm. Verður 1174 ferm og fær heitið Ásvegur 7
    Neðri- Ás 2 lóð 5, landnúmer 146480 er 2744 ferm Verður 4463 ferm og fær heitið Ásvegur 4.
    Erindið samþykkt eins og það er fyrir lagt.

    Bókun fundar Afgreiðsla 368. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 396. fundi sveitarstjórnar 1. apríl 2020 með níu atkvæðum.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 368 Tryggvi Már Ingvarsson kt. 040977-3259, f.h. Björns Valdimarssonar kt. 090155-7099, Bjarnheiðar K. Guðmundsdóttur kt. 010548-2339, Bjarkar Guðmundsdóttur kt. 050653-7819, Þórunnar Guðmundsdóttur kt. 130949-2239 og Sjafnar Guðmundsdóttur kt. 170955-3829 leggur fram hnitasettan uppdrátt ásamt greinargerð með yfirlýsingu um eignamörk/afmörkunar á lóðinni Minni-Grindill lóð 146859.
    Stærð og afmörkun lóðarinnar Minni-Grindill lóð 146859 samþykkt eins og grein er fyrir henni gerð í fyrirliggjandi greinargerð sem dagsett er 21. febrúar 2020.
    Bókun fundar Afgreiðsla 368. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 396. fundi sveitarstjórnar 1. apríl 2020 með níu atkvæðum.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 368 Á 364. Fundi Skipulags- og byggingarnefndar Sveitarfélagsins Skagafjarðar þann 16. apríl 2019 var Sverri Þór Kristjánssyni kt. 290560-2419 úthlutuð lóðin Melatún 2 á Sauðarkróki, fyrir einbýlishús. Staðfest í sveitarstjórn 24.apríl 2019. Fyrir liggur staðfest og undirritað samkomulag dags. 13. mars 2020 á milli aðila um að Sverrir Þór skili inn lóðinni til sveitarfélagsins. Aðilar eru sammála um að hvorugur aðili hafi kröfu á hinn vegna málsins.
    Skipulag- og byggingarnefnd samþykkir fyrirliggjandi samkomulag.
    Bókun fundar Afgreiðsla 368. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 396. fundi sveitarstjórnar 1. apríl 2020 með níu atkvæðum.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 368 Ingi Björn Árnason kt. 310381-3579, leggur fram umsókn dags. 24.2.2020, f.h. Marbælis ehf kt. 700402-5840, um heimild til að stofna 10.344,5 m2 lóð/landspildu úr landi Marbælis L146058. Óskað er eftir að spildan fái heitið Lindholt. Meðfylgjandi gögn eru afstöðuuppdráttur nr. S01 úr verki 787301 útg. 6. nóvember 2019. unnin af Stoð verkfræðistofu. Aðkoma að nýrri lóð/landspildu mun liggja um land Marbælis L146058. Erindið samþykkt eins og það er fyrir lagt. Bókun fundar Afgreiðsla 368. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 396. fundi sveitarstjórnar 1. apríl 2020 með níu atkvæðum.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 368 Gunnar Kr. Sigmundsson verkefnastjóri hjá Olíudreifingu ehf. Kt. 660695-2069 leggur fram umsókn um leyfi til að fjarlægja eftirfarandi fasteignir sem staðsettar eru sem birgðastöð félagsins við Eyrarveg á Sauðárkróki:
    a) 622,4m3 ofanjarðar-geymir/tankur með merkinguna T00824, Fastanr. 213 1421. Mhl 01-010101
    b) 161,9m3 ofanjarðar-geymir/tankur með merkinguna T0020, Fastanr. 213 1421. Mhl 07-010101
    c) 358,2m3 ofanjarðar-geymir/tankur með merkinguna T0021, Fastanr. 213 1421. Mhl 04-010101
    d) 537,1m3 ofanjarðar-geymir/tankur með merkinguna T0083, Fastanr. 213 1421. Mhl 02-010101
    e) 466,1m3 ofanjarðar-geymir/tankur með merkinguna T0162, Fastanr. 213 1421. Mhl 03-0101
    f) 16,8m2 geymsluhúsnæði, fastanr. 213 1421. Mhl 05-0101
    g) 5,6m2 dæluhús fastanr. 213 1421. Mhl 06-0101
    Þá er óskað eftir leyfi til að fjarlægja allar ofanjarðar eldsneytislagnir stöðvarinnar.
    Allt lagnakerfi frá bryggju inn að stöð verður tæmt af eldsneyti og lagnir hreinsaðar.
    Ekki er gert ráð fyrir að fjarlægja lagnir sem eru neðanjarðar.
    Öryggisgirðing umhverfis svæðið verður ekki fjarlægð að svo stöddu.
    Skipulags- og byggingarnefnd óskar eftir að Olíudreifing ehf. geri nánari grein fyrir fyrirhuguðum framkvæmdum og viðbúnaði ef í ljós kemur að olíumengun reynist vera í kringum eða undir tönkum sem verða fjarlægðir. Þá er sömuleiðis óskað eftir að Olíudreifing ehf. skili inn yfirlýsingu frá Umhverfisstofnun varðandi það sjónarmið Olíudreifingar ehf. að umbeðin framkvæmd sé hvorki háð starfsleyfi, né ákvæði greinar 1.5. í starfsleyfi fyrir olíubirgðastöð Olíudreifingar ehf á Sauðárkróki.

    Bókun fundar Afgreiðsla 368. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 396. fundi sveitarstjórnar 1. apríl 2020 með níu atkvæðum.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 368 Davíð Logi Jónsson kt. 300188-2819 og Embla Dóra Björnsdóttir kt. 290486-2629 eigendur lögbýlisins Egg L146368 leggja fram umsókn um framkvæmdaleyfi vegna fyrirhugaðrar nytjaskógræktunar á um 28,3ha svæði í landi jarðarinnar. Um er að ræða stækkun á svæði sem í hefur verið gróðursett samtals 34 ha. Heildarstærð skógræktarsvæðis verður því um 59,3ha. Umrætt svæði er skilgreint í gildandi aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2009-2021 sem landbúnaðarland. Svæðið nýtur ekki sérstakrar náttúruverndar og hefur ekki verið skoðað með tilliti til skráningu eða leitar að fornminjum.
    Nefndin frestar afgreiðslu málsins og óskar eftir að lögð verði fram umsögn Minjavarðar og Vegagerðarinnar.
    Bókun fundar Afgreiðsla 368. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 396. fundi sveitarstjórnar 1. apríl 2020 með níu atkvæðum.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 368 Fyrir liggur, til kynningar, lóðarblað vegna lóðarinnar Knarrarstígur 1 á Sauðárkróki. Vinnudrög unnin af Stoð ehf og skipulagsfulltrúa.
    Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram.
    Bókun fundar Afgreiðsla 368. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 396. fundi sveitarstjórnar 1. apríl 2020 með níu atkvæðum.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 368 101. afgreiðslufundur byggingarfulltrúa lagður fram til kynningar. Bókun fundar Afgreiðsla 368. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 396. fundi sveitarstjórnar 1. apríl 2020 með níu atkvæðum.