Fara í efni

Ákvörðun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra varðandi skil á ársreikningum sveitarfélaga

Málsnúmer 2004086

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 397. fundur - 15.04.2020

Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar samþykkir, með vísan til auglýsingar um ákvörðun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra varðandi skil á ársreikningum sveitarfélaga, eftirfarandi tímabundin frávik frá skilyrðum ákvæða 3. og 4. mgr. 61. gr. og 2. mgr. 76. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011 varðandi skil á ársreikningi sveitarfélagsins fyrir árið 2019:
1. Ársreikningur verði fullgerður og samþykktur af byggðarráði og tilbúinn til endurskoðunar og afgreiðslu í sveitarstjórn fyrir 15. maí 2020 í stað 15. apríl sama ár.
2. Staðfestingu ársreiknings sveitarfélagsins, stofnana þess og fyrirtækja verði lokið fyrir 15. júní 2020 í stað 15. maí sama ár.
3. Ársreikningur sveitarfélagsins, ásamt skýrslu endurskoðanda, verði sendur ráðuneytinu og Hagstofu Íslands fyrir 20. júní 2020 í stað 20. maí sama ár.
Heimild þessi gildir til 20. júní 2020.

Borið upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykkt með 9 atkvæðum.