Fara í efni

Gjaldskrá Byggðasafns Skagfirðinga fyrir 2021

Málsnúmer 2005044

Vakta málsnúmer

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd Svf Skagafjarðar - 76. fundur - 06.05.2020

Tekin fyrir tillaga frá Berglindi Þorsteinsdóttur safnstjóra Byggðasafns Skagfirðinga þar sem hún leggur til að gjaldskrá safnsins haldist óbreytt fyrir árið 2021.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir tillöguna og vísar henni til byggðarráðs.

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar - 914. fundur - 13.05.2020

Lögð fram bókun 76. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar þann 6. maí 2020. Nefndin samþykkti tillögu Berglindar Þorsteinsdóttur safnstjóra Byggðasafns Skagfirðinga um að gjaldskrá safnsins haldist óbreytt fyrir árið 2021 og vísaði til byggðarráðs.
Byggðarráð samþykkir framlagða tillögu um gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 399. fundur - 03.06.2020

Lögð fram tillaga Berglindar Þorsteinsdóttur safnstjóra Byggðasafns Skagfirðinga um að gjaldskrá safnsins haldist óbreytt fyrir árið 2021, sem samþykkt var 914. á fundi byggðarráðs þann 13. maí sl. og vísað til afgreiðslu sveitarstjórnar.

Tillagan borin upp til afgreiðslu sveitarstjónar og samþykkt með 9 atkvæðum.