Aðalagata 4 - Umsókn um breytta notkun
Málsnúmer 2006010
Vakta málsnúmerAfgreiðslufundur byggingarfulltrúa Svf Skagafjarðar - 105. fundur - 10.06.2020
Ólína Björk Hjartardóttir kt. 130988-2889 sækir f.h. Drangey gistiheimili ehf. kt. 600709-1510, eiganda efri hæðar, íbúðar með fasteignanúmer F2131098 sem stendur á lóðinni nr. 4 við Aðalgötu á Sauðárkróki um breytta skráningu eignarinnar úr gistiheimili í íbúðarhúsnæði. Fyrir liggur tilkynning leyfisveitanda um að rekstrarleyfisskyldri starfsemi hafi verið hætt. Erindið samþykkt.