Lagt fram bréf dagsett 30. júní 2020 frá reiðveganefnd Hestamannafélagsins Skagfirðings þar sem vakin er athygli á að á árinu 2020 rennur út samningur á milli Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Skagfirðings um uppbyggingu reiðvega í Skagafirði. Óskar nefndin eftir gerð nýs samnings. Jafnframt telur nefndin brýnt að hraðað verði framkvæmdum við reiðveg fyrir sunnan og ofan Sauðárkrók. Byggðarráð felur sveitarstjóra að vinna að gerð nýs samnings og ræða við nefndina um gerð reiðvegar fyrir sunnan og ofan Sauðárkrók.
Byggðarráð felur sveitarstjóra að vinna að gerð nýs samnings og ræða við nefndina um gerð reiðvegar fyrir sunnan og ofan Sauðárkrók.