Fara í efni

Byggðarráð Skagafjarðar - 928

Málsnúmer 2008020F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 402. fundur - 23.09.2020

Fundargerð 928. fundar byggðarráðs frá 2. september 2020 lögð fram til afgreiðslu á 402. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Gísli Sigurðsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 928 Fulltrúar Hrafnshóls ehf. Ómar Guðmundsson, Friðrik Friðriksson kynntu áform um uppbyggingu íbúða við Freyjugötu auk Sigurðar Garðarssonar sem tók þátt í fundinum í gegnum fjarfundabúnað. Fulltrúar skipulags- og byggingarnefndar sátu fundinn einnig undir þessum dagskrárlið ásamt Rúnari Guðmundssyni skipulagsfulltúa sem tók þátt í gegnum fjarfundabúnað.
    Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að vinna áfram að samningsgerð um uppbyggingu á reitnum við Freyjugötu við Hrafnshól ehf.
    Bókun fundar Afgreiðsla 928. fundar byggðarráðs staðfest á 402. fundi sveitarstjórnar 23. september 2020 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 928 Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar hefur undanfarið haft til umfjöllunar og athugunar mengunarslys sem tengist bensínstöð N1 að Suðurbraut 9 á Hofsósi. Málefni umhverfismengunar á Hofsósi rædd. Steinn Leó Sveinsson sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið og kynnti stöðu málsins og næstu skref rædd. Bókun fundar Afgreiðsla 928. fundar byggðarráðs staðfest á 402. fundi sveitarstjórnar 23. september 2020 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 928 Steinn Leó Sveinsson sviðssjóri veitu- og framkvæmdasviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið og fór yfir viðhalds- og nýframkvæmdir ársins 2020. Bókun fundar Afgreiðsla 928. fundar byggðarráðs staðfest á 402. fundi sveitarstjórnar 23. september 2020 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 928 Lagt fram bréf dagsett 24. ágúst 2020 frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu varðandi úttekt ráðuneytisins á þeim samningum sem Sveitarfélagið Skagafjörður starfaði eftir þegar úttektin var gerð í upphafi árs 2018. Ráðuneytið gerir athugasemdir við stofnsamning Norðursorps (Norðurá) bs. frá árinu 2005. Einnig samning um sameiginlegt þjónustusvæði á Norðurlandi vestra um þjónustu við fatlað fólk frá árinu 2017 og samkomulag um samstarf um rekstur Náttúrustofu Norðurlands vestra frá sama ári. Að lokum er gerð athugasemd við samstarfssamning milli Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Akrahrepps um ýmsa þjónustu frá árinu 1999 og samkomulag um rekstur Varmahlíðarskóla, Tónlistarskóla Skagafjarðar og leikskólans Birkilundar, milli Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Akrahrepps, frá árinu 1999. Á árinu 2019 var gerður þjónustusamningur á milli Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Akrahrepps sem uppfyllir þau skilyrði sem krafist er og tók hann gildi 1. janúar 2019 og féllu framangreindir samningar þá úr gildi.
    Ráðuneytið beinir því til sveitarfélagsins í framangreindu erindi að það yfirfari framangreinda samninga og bæti úr annmörkum.
    Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að endurskoða samningana í samráði við viðkomandi samstarfsaðila.
    Bókun fundar Afgreiðsla 928. fundar byggðarráðs staðfest á 402. fundi sveitarstjórnar 23. september 2020 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 928 Lögð fram til kynningar fundargerð aðalfundar Tímatákns ehf. árið 2020. Bókun fundar Afgreiðsla 928. fundar byggðarráðs staðfest á 402. fundi sveitarstjórnar 23. september 2020 með níu atkvæðum.