Fara í efni

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 79

Málsnúmer 2008022F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 402. fundur - 23.09.2020

Fundargerð 79. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar frá 2. september 2020 lögð fram til afgreiðslu á 402. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Gunnsteinn Björnsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 79 Tekið fyrir erindi frá Berglindi Þorsteinsdóttur safnstjóra Byggðasafns Skagfirðinga, dagsett 29. ágúst 2020, um breytingar á opnunartíma safnsins í Glaumbæ. Leggur safnstjóri til að safnið skipti fyrr yfir í vetraropnun en áætlað var og verði opið frá kl 10 - 16 alla virka daga frá 1. september. Er megin ástæðan minni aðsókn ferðamanna á safnið sökum hetra sóttvarnaaðgerða almannavarna sem nú eru í gildi.
    Inga Katrín vék af fundi undir þessum lið.
    Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir breyttan opnunartíma.
    Bókun fundar Afgreiðsla 79. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar staðfest á 402. fundi sveitarstjórnar 23. september 2020 með níu atkvæðum.
  • Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 79 Tekið fyrir erindi frá Magnúsi Jónssyni fyrir hönd Maró slf, dagsett 19. ágúst 2020, um undanþágu á veiðiskyldu móframlags fyrir byggðakvóta fiskveiðiárið 2019/2020.
    Vegna bilunar í bát félagsins, Maró SK 33 fn 2833, og erfiðleika við að fá varahluti sem rekja má til COVID faraldursins hefur ekki verið unnt að stunda veiðar frá 21. apríl 2020 til 16. ágúst 2020. Er farið fram á að Sveitarfélagið Skagafjörður óski eftir undanþágu frá veiðiskyldu mótframlags byggðakvóta fyrir ofangreindan bát.
    Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir að fela starfsmönnum nefndarinnar að senda formlegt erindi á atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið og óska eftir að málið verði tekið til skoðunar í ljósi aðstæðna.
    Bókun fundar Afgreiðsla 79. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar staðfest á 402. fundi sveitarstjórnar 23. september 2020 með níu atkvæðum.
  • .3 2006218 Sæluvika 2020
    Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 79 Tekið fyrir hvort unnt sé að halda Sæluviku dagana 27. september til 3. október eins og ákveðið var á síðasta fundi nefndarinnar.
    Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd telur í ljósi hertra sóttvarnaaðgerða að ekki sé skynsamlegt að halda Sæluviku á þessum tímapunkti og aflýsir því Sæluviku 2020.
    Bókun fundar Afgreiðsla 79. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar staðfest á 402. fundi sveitarstjórnar 23. september 2020 með níu atkvæðum.
  • Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 79 Samfélagsverðlaun Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2020 tekin til umfjöllunar. Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd ákveður að veita verðlaunin þrátt fyrir að Sæluviku 2020 hafi verið aflýst og felur starfsmönnum nefndarinnar að auglýsa eftir tilnefningum.
    Bókun fundar Afgreiðsla 79. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar staðfest á 402. fundi sveitarstjórnar 23. september 2020 með níu atkvæðum.
  • Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 79 Starfsmenn nefndarinnar kynntu fyrirhugað markaðsátak fyrir Sveitarfélagið Skagafjörð sem vænlegan búsetukost. Áhersla verður lögð á þá fjölbreyttu þjónustu, náttúru, menningu og atvinnulíf sem sveitarfélagið hefur upp á að bjóða.
    Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir að ganga til samninga við auglýsingastofuna Sahara til að halda utan um herferðina á grundvelli hugmynda sem fyrirtækið hefur lagt fram.
    Bókun fundar Afgreiðsla 79. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar staðfest á 402. fundi sveitarstjórnar 23. september 2020 með níu atkvæðum.