Drög að kaupsamningi og afsali eigna
Málsnúmer 2009267
Vakta málsnúmerStjórn Menningarseturs Skagfirðinga - 14. fundur - 30.09.2020
Sesselja Árnadóttir fór yfir drög að kaupsamningi og afsali á eignum Menningarseturs Skagfirðinga. Samþykkt var að kynna drögin fyrir byggðarráði Sveitarfélagsins Skagafjarðar.
Byggðarráð Svf. Skagafjarðar - 942. fundur - 02.12.2020
Lagður fram kaupsamningur milli Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Varmahlíðarstjórnar (Menningarseturs Skagfirðinga) um kaup sveitarfélagsins á öllum fasteignum og hitaveituréttindum í eigu Varmahlíðarstjórnar. Umsamið kaupverð er 179.384.000 kr.
Byggðarráð samþykkir framlagðan samning og felur sveitarstjóra að ganga frá honum til undirritunar með fyrirvara um samþykki sveitarstjórnar.
Byggðarráð samþykkir framlagðan samning og felur sveitarstjóra að ganga frá honum til undirritunar með fyrirvara um samþykki sveitarstjórnar.