Félags- og tómstundanefnd - 284
Málsnúmer 2012002F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 405. fundur - 16.12.2020
Fundargerð 284. fundar félags- og tómstundanefndar frá 4. desember 2020 lögð fram til afgreiðslu á 4045 fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Stefán Vagn Stefánsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Félags- og tómstundanefnd - 284 Fjárhagsáætlun frístundaþjónustu hefur tekið örlitlum breytingum frá síðustu umræðu. Um er að ræða launaliði nokkurra stofnana sem voru vanreiknaðir við síðustu umræðu. Hækkanir nema u.þ.b. 1.5 milljón króna. Á móti hafa orðið lækkanir á innri gjöldum þannig að samtals nema hækkanir í málaflokki 06 um 350 þúsund krónum. Félags- og tómstundanefnd samþykkir áætlunina eins og hún liggur fyrir nú og vísar henni til síðari umræði í byggðarráði og sveitarstjórn. Bókun fundar Afgreiðsla 284. fundar félags- og tómstundanefndar staðfest á 405. fundi sveitarstjórnar 16. desember 2020 með níu atkvæðum.
-
Félags- og tómstundanefnd - 284 Fjárhagsáætlun félagsþjónustu hefur breyst talsvert milli umræðna. Fyrst og fremst er um að ræða tekjuliði en útsvarstekjur ásamt endurgreiðslur sveitarfélaga vegna málefna fatlaðs fólks voru verulega vantaldar við fyrri umræðu. Í heildina er um að ræða um 40 milljónir króna til lækkunar áætluninni.
Félags- og tómstundanefnd samþykkir áætlunina eins og hún liggur fyrir nú og vísar henni til síðari umræði í byggðarráði og sveitarstjórn. Bókun fundar Afgreiðsla 284. fundar félags- og tómstundanefndar staðfest á 405. fundi sveitarstjórnar 16. desember 2020 með níu atkvæðum.