Fara í efni

Helluland - Umsagnarbeiðni vegna rekstrarleyfis

Málsnúmer 2012142

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar - 946. fundur - 23.12.2020

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 14. desember 2020 úr máli 2012121, frá sýslumannsembættinu á Norðurlandi vestra. Með vísan til 10. gr. laga nr. 85/2007, svo og 26. gr. reglug. nr. 1277/2016, er óskað eftir umsögn um umsókn dags. 30.11. 2020 frá Peony Wiedemann, Hellulandi, 551 Sauðárkrókur, f.h. Helluland 551 ehf, um leyfi til að reka gististað í flokki II að Hellulandi, fnr.2142383, 551 Sauðárkróki.
Byggðarráð gerir ekki athugasemd við umsóknina.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa Svf Skagafjarðar - 113. fundur - 12.01.2021

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 14. desember 2020 úr máli 2012121, frá sýslumannsembættinu á Norðurlandi vestra. Með umsókn dagsettri 30. nóvember 2020 sækir Peony Wiedemann, kt. 261174-6269, f.h. Hellulands 551 ehf., kt. 681020-0390, um leyfi til að reka gististað í flokki II að Hellulandi, F2142383. Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við umsóknina.