Lagðar fram áskoranir frá Samtökum grænkera á Íslandi, dagsettar 21. desember 2020. Annars vegar til sveitarafélaga um skýr markmið varðandi framboð grænkerafæðis í skólum og hinsvegar í tilefni af Veganúar 2021 skora Samtök grænkera á Íslandi á alla leik- og grunnskóla landsins að bjóða upp á grænkerafæði fyrir alla nemendur sína að minnsta kosti einu sinni í viku nú í janúar. Byggðarráð leggur áherslu á að í skólum sveitarfélagsins sé eins og kostur er boðið upp á holla og fjölbreytta fæðu svo sem kjöt, fisk, mjólkurvörur og grænmeti sem framleidd er í Skagafirði. Með því telur sveitarfélagið að komið sé til móts við bæði lýðheilsumarkmið, gildi heilsueflandi samfélags og lágmörkun kolefnisspors.
Byggðarráð leggur áherslu á að í skólum sveitarfélagsins sé eins og kostur er boðið upp á holla og fjölbreytta fæðu svo sem kjöt, fisk, mjólkurvörur og grænmeti sem framleidd er í Skagafirði. Með því telur sveitarfélagið að komið sé til móts við bæði lýðheilsumarkmið, gildi heilsueflandi samfélags og lágmörkun kolefnisspors.