Fræðslunefnd - 165
Málsnúmer 2102006F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 407. fundur - 24.02.2021
Fundargerð 165. fundar fræðslunefndar frá 10. febrúar 2021 lögð fram til afgreiðslu á 407. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Stefán Vagn Stefánsson kynnti fundargerð. Jóhanna Ey Harðardóttir, Axel Kárason, Axel Kárason öðru sinni og Bjarni Jónsson kvöddu sér hljóðs.
-
Fræðslunefnd - 165 Lagt fram erindi frá Einari Kára Magnússyni vegna fyrirsjáanlegs biðlista við leikskólann Birkilund í Varmahlíð árin 2021 og 2022. Í ljósi fjölgunar íbúa, ekki síst ungs fólks, á starfssvæði Birkilundar er hvatt til þess að sveitarstjórn bregðist við fyrirséðum skorti á leikskólaplássum.
Fræðslunefnd þakkar Einari Kára greinargott erindi. Starfsfólk fræðsluþjónustu sveitarfélagsins fylgist grannt með biðlistum við leikskóla Skagafjarðar og á reglulegt samtal við leikskólatjóra um stöðuna. Varðandi Birkilund sérstaklega er útlit fyrir að flest börn frá eins árs aldri fái leikskólavistun við upphaf næsta skólaárs. Jafnframt er bent á að nú er í gangi vinna við framtíðarskipulag skólamála í Varmahlíð og er þess vænst að niðurstaða um hvernig staðið verði að uppbyggingu leik- og grunnskóla þar liggi fyrir á næstu vikum. Ástæða er til að hraða vinnu við úrbætur starfsumhverfis leikskólans Birkilundar sem kostur er og hvetur fræðslunefnd sveitarstjórnir beggja sveitarfélaganna í Skagafirði til að ganga rösklega til verks í þeim efnum. Bókun fundar Afgreiðsla 165. fundar fræðslunefndar staðfest á 407. fundi sveitarstjórnar 24. febrúar 2021 með níu atkvæðum. -
Fræðslunefnd - 165 Biðlistar vegna leikskólanna í Skagafirði kynntir og ræddir. Fræðslunefnd hvetur sveitarstjórn til að huga vel að innviðauppbyggingu hvað leikskóla Skagafjarðar varðar. Íbúum sveitarfélagsins hefur fjölgað talsvert m.v. nýjustu íbúatölur og svo virðist sem barnafjölskyldum fjölgi mest. Örugg og fagleg dagvistun barna er forsenda þess að barnafjölskyldur geti og vilji flytjast til Skagafjarðar.
Steinunn Rósa Guðmundsdóttir óskar bókað: VG og óháð leggja áherslu á fjölskylduvænt samfélag í sveitarfélaginu Skagafirði. Eitt af grunnatriðum fýsilegrar búsetu fyrir ungt fólk er að uppbygging innviða sé í takt við byggðaþróun bæði í þéttbýli og dreifbýli. Skortur á leikskólaplássum hefur verið langvarandi hjá sveitarfélaginu en það er með öllu ótækt að allt að fjögurra ára börn fái ekki leikskólavist og biðlistar séu viðvarandi. Nauðsynlegt er að gera ráðstafanir nú þegar, til að tryggja öllum börnum sveitarfélagsins, eins árs eða eldri, leikskólavist á haustmánuðum þessa árs. Bókun fundar Álfhildur Leifsdóttir og Bjarni Jónsson hjá VG og óháðum óska bókað: VG og óháð leggja áherslu á fjölskylduvænt samfélag í sveitarfélaginu Skagafirði. Eitt af grunnatriðum fýsilegrar búsetu fyrir ungt fólk er að uppbygging innviða sé í takt við byggðaþróun bæði í þéttbýli og dreifbýli. Skortur á leikskólaplássum hefur verið langvarandi hjá sveitarfélaginu en það er með öllu ótækt að allt að fjögurra ára börn fái ekki leikskólavist og biðlistar séu viðvarandi. Nauðsynlegt er að gera ráðstafanir nú þegar, til að tryggja öllum börnum sveitarfélagsins, eins árs eða eldri, leikskólavist á haustmánuðum þessa árs.
Axel Kárason kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi bókun:
Sveitarstjórnarfulltrúar Sveitarfélagsins Skagafjarðar hafa verið samtaka í því markmiði sínu að uppfylla þarfir sem flestra barna fyrir leikskólavistun í héraðinu. Útlit er fyrir að flest börn frá eins árs aldri utan Sauðárkróks fái leikskólavistun við upphaf næsta skólaárs en í þessu sambandi má nefna að ný leikskólabygging á Hofsósi verður tekin í notkun síðar á þessu ári og að einnig er í gangi mikil og góð vinna við framtíðarskipulag skólamála í Varmahlíð þar sem horft er m.a. til úrbóta starfsumhverfis leikskólans Birkilundar. Hvað leikskólavistun á Sauðárkróki varðar þá samþykkti sveitarstjórn í lok síðasta árs fjárhagsáætlun fyrir árið 2021 þar sem veittar eru 45 m.kr. til viðbyggingar við leikskólann Ársli á Sauðárkróki. Unnið hefur verið að mögulegum útfærslum þeirrar byggingar sem munu fara fljótlega til umfjöllunar í byggðarráði og fræðslunefnd, með það að markmiði að skjótt náist að uppfylla fyrirsjáanlegar þarfir fyrir fjölgun leikskólaplássa á Sauðárkróki. Aukin þörf fyrir leikskólapláss er ánægjulegur vitnisburður um þá miklu grósku sem á sér stað í atvinnu- og mannlífi í Sveitarfélaginu Skagafirði.
Afgreiðsla 165. fundar fræðslunefndar staðfest á 407. fundi sveitarstjórnar 24. febrúar 2021 með níu atkvæðum. -
Fræðslunefnd - 165 Lagður fram úrskurður kærunefndar útboðsmála frá 19. janúar 2021. Kærunefnd útboðsmála úrskurðar að Sveitarfélagið Skagafjörður skuli greiða kæranda útboðsins, Suðurleiðum ehf., 650.000 krónur vegna málskostnaðar við kæruferlið. Jafnframt telur kærunefndin að sveitarfélagið sé skaðabótaskylt gagnvart kæranda ,,vegna kostnaðar hans af því að undirbúa tilboð sitt og taka þátt í hinu kærða útboði". Líkt og áður hefur komið fram laut kæran að töku tilboðs lægstbjóðanda. Áður en til efnislegrar niðurstöðu kærunnar kom ákvað fræðslunefnd að fella niður útboðið er í ljós kom að undir rekstri málsins fyrir nefndinni að það var ekki auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu eins og lög um opinber innkaup, nr. 120/2016, kveða á um. Samkvæmt sömu lögum ber sveitarfélaginu að taka lægsta tilboði svo fremi að það standist lög og útboðsskilmála. Ákvörðun um töku tilboðs er síðan kynnt í viðkomandi nefnd. Við gerð útboðsins leitaði Sveitarfélagið Skagafjörður til ráðgjafaraðila um framkvæmd og auglýsingu útboðsins.
Steinunn Rósa Guðmundsdóttir óskar bókað: VG og óháð hafa ekki staðið að afgreiðslum tengdum eldra eða nýju útboði og málatilbúnaði því tengdu vegna skólaaksturs á Sauðárkróki og telja að ekki hafi verið staðið vel að útboði og ákvörðunum í þessu máli. Þá fjallaði fræðslunefnd ekki um tilboðin í fyrra útboðinu, en slíkt er í hennar verkahring og í samræmi við góða stjórnsýsluhætti, en ekki láta það sviðstjóra og starfsmönnum einum eftir. Ljóst er að skerpa þarf á valdsviði og hlutverki pólitískt kjörinna fastnefnda sveitarfélagsins. Áréttað er að VG og óháð eiga áheyrnarfulltrúa í fræðslunefnd án atkvæðisréttar. Bókun fundar Álfhildur Leifsdóttir og Bjarni Jónsson hjá VG og óháðum óska bókað: VG og óháð hafa ekki staðið að afgreiðslum tengdum eldra eða nýju útboði og málatilbúnaði því tengdu vegna skólaaksturs á Sauðárkróki og telja að ekki hafi verið staðið vel að útboði og ákvörðunum í þessu máli. Þá fjallaði fræðslunefnd ekki um tilboðin í fyrra útboðinu, en slíkt er í hennar verkahring og í samræmi við góða stjórnsýsluhætti, en ekki láta það sviðstjóra og starfsmönnum einum eftir. Ljóst er að skerpa þarf á valdsviði og hlutverki pólitískt kjörinna fastnefnda sveitarfélagsins. Áréttað er að VG og óháð eiga áheyrnarfulltrúa í fræðslunefnd án atkvæðisréttar.
Axel Kárason kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi bókun:
Í tilefni af bókun fulltrúa VG og óháðra í fræðslunefnd um að það sé í verkahring fræðslunefndar og í samræmi við góða stjórnsýsluhætti að fjalla um tilboð umrædds útboðs þá vilja fulltrúar meirihlutans benda á að fylgja ber lögum um opinber innkaup í hvívetna eftir að tekin hefur verið ákvörðun um að bjóða eitthvað tiltekið verk út, falli það innan ramma laganna, líkt og í þessu tilfelli. Í því felst að samningagerð í kjölfar útboða eru á ábyrgð viðkomandi starfsmanns sveitarfélagsins í samræmi við útboðsskilmála hverju sinni og lög um opinber innkaup. Pólitískar nefndir geta ekki vikið frá lögum um opinber innkaup hvað töku tilboða varðar.
Þetta er einnig áréttað í Innkaupareglum Sveitarfélagsins Skagafjarðar sem eru til umfjöllunar síðar á þessum fundi og sem fulltrúar allra flokka í byggðarráði hafa þegar samþykkt. Þar kemur skýrt fram að samningagerð í kjölfar útboða skulu vera á ábyrgð viðkomandi sviðsstjóra í samræmi við útboðsskilmála hverju sinni og lög um opinber innkaup en að niðurstöður útboða skuli sendar viðkomandi fagnefnd sveitarfélagsins, eða sérnefnd um tiltekið verkefni, til kynningar.
Bjarni Jónsson og Álfhildur Leifsdóttitr VG og óháðum óska bókað: Sú bókun sem kom hér fram hjá fulltrúa framsóknarflokks breytir engu um þær ábendingar sem koma fram í fyrri bókun VG og óháðra.
Afgreiðsla 165. fundar fræðslunefndar staðfest á 407. fundi sveitarstjórnar 24. febrúar 2021 með níu atkvæðum.