Lagt fram bréf dagsett 26. mars 2021 frá Eignarhaldsfélagi Brunabótafélag Íslands varðandi styrktarsjóð EBÍ 2021. Vakin er athygli á að aðildarsveitarfélögum EBÍ er heimilt að senda inn umsókn í sjóðinn sem er vegna sérstakra framfaraverkefna á vegum sveitarfélaganna, s.s. sérstakar athuganir eða rannsóknir á ýmsum þróunarþáttum í atvinnulífi, samgöngum, fræðslu- og menningarmálum, en ekki vegna almennra rekstrarverkefna þeirra. Umsóknarfrestur er til 30. apríl 2021. Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að kynna málið fyrir sviðsstjórum.
Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að kynna málið fyrir sviðsstjórum.