Veitunefnd - 76
Málsnúmer 2104013F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 410. fundur - 19.05.2021
Fundargerð 76. fundar veitunefndar frá 15. apríl 2021 lögð fram til afgreiðslu á 410. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Stefán Vagn Stefánsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Veitunefnd - 76 Ísor (Íslenskar Orkurannsóknir) hafa lokið gerð útboðslýsingar vegna borunar á nýrri heitavatnsholu VH-20 við Reykjarhól í Varmahlíð.
Steinn Leó Sveinsson sviðsstjóri kynnti verklýsinguna fyrir nefnarmönnum. Gert er ráð fyrir að boruð verði allt að 700 m djúp hola. Verkið verður sett í verðfyrirspurn og verða gögn þar að lútandi send út á næstu dögum. Bókun fundar Afgreiðsla 76. fundar veitunefndar staðfest á 410. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2021 níu atkvæðum. -
Veitunefnd - 76 Sótt hefur verið um framkvæmdaleyfi til skipulagsfulltrúa vegna slóðagerðar, lagningu hitaveitu-, raf- og ljósleiðaralagna og gerð borplans vegna fyrirhugaðrar borunar á heitavatnsholu VH-20 við Reykjarhól.
Sveitastjórn samþykkti á fundi nr. 409 þann 14. apríl 2021 að veita leyfi fyrir framkvæmdinni á grundvelli innsendra gagna. Veitunefnd lýsir ánægju sinni með að þeim áfanga séð náð og að hægt sé að hefja vinnu við verðfyrirspurn og borun. Bókun fundar Afgreiðsla 76. fundar veitunefndar staðfest á 410. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2021 níu atkvæðum. -
Veitunefnd - 76 Skagafjarðarveitur hafa óskað eftir tilboðum í dælur og búnað vegna fyrirhugaðrar síkkunar dælu í holu SK-28 í Hrolleifsdal. Tilboði frá Deili ehf. var tekið og búnaður kominn og tilbúinn til niðursetningar.
Gunnar Björn Rögnvaldsson verkefnastjóri hjá Skagafjarðarveitum gerði grein fyrir búnaði sem þarf til verkefnisins. Þessi aðgerð eykur afhendingaröryggi veitunnar og vonir standa til að það náist upp meira heitt vatn en fengist hefur hingað til. Bókun fundar Afgreiðsla 76. fundar veitunefndar staðfest á 410. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2021 níu atkvæðum. -
Veitunefnd - 76 Skagafjarðarveitur hafa óskað eftir tilboðum í dælur og búnað í fyrirhugaða nýja vinnsluholu VH-20 í Varmahlíð.
Gunnar Björn Rögnvaldsson verkefnastjóri hjá Skagafjarðarveitum gerði grein fyrir búnaði sem þarf til verkefnisins. Ef vel tekst til við borun mun þessi aðgerð auka afhendingaröryggi veitunnar og einnig opna möguleika á stækkun veitunnar. Bókun fundar Afgreiðsla 76. fundar veitunefndar staðfest á 410. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2021 níu atkvæðum. -
Veitunefnd - 76 Ákveðið hefur verið að klára ljósleiðaravæðingu dreifbýlis í Skagafirði í tengslum við verkefnið Ísland ljóstengt. Lagning leiðarans verður boðin út á árinu 2021.
Valur Valsson verkefnastjóri gerði grein fyrir stöðu verkefnisins.
Veitunefnd fagnar ákvörðuninni og felur sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs að annast undirbúning á hönnun og gerð útboðsganga. Bókun fundar Afgreiðsla 76. fundar veitunefndar staðfest á 410. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2021 níu atkvæðum.