Fara í efni

Kjörstaðir við Alþingiskosningar sept 2021

Málsnúmer 2106142

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar - 970. fundur - 16.06.2021

Lagt er til að svohljóðandi tillögum verði vísað til afgreiðslu sveitarstjórnar:
Lagt er til að kjörstaðir í Sveitarfélaginu Skagafirði vegna kosninga til Alþingis sem ráðgerðar eru 25. september 2021 verði eftirtaldir:
Skagasel, Bóknámshús FNV, Félagsheimilið Árgarður, Grunnskólinn á Hólum, Félagsheimilið Höfðaborg, Grunnskólinn á Sólgörðum, Varmahlíðarskóli og Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Sauðárkróki
Einnig samþykkir sveitarstjórn að fela byggðarráði að afgreiða til fullnaðar eftirtalin verkefni vegna alþingiskosninganna: að staðfesta kjörskrá, úrskurða um breytingar á kjörskrá og ráða til lykta öðrum málum sem kunna að heyra undir verksvið sveitarstjórnar í sambandi við kosningar.
Byggðarráð samþykkir tillöguna.

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 412. fundur - 30.06.2021

Vísað frá 970. fundi byggðarráðs frá 16 júní til afgreiðslu sveitarstjórnar.

Lagt er til að kjörstaðir í Sveitarfélaginu Skagafirði vegna kosninga til Alþingis sem ráðgerðar eru 25. september 2021 verði eftirtaldir: Skagasel, Bóknámshús FNV, Félagsheimilið Árgarður, Grunnskólinn á Hólum, Félagsheimilið Höfðaborg, Grunnskólinn á Sólgörðum, Varmahlíðarskóli og Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Sauðárkróki Einnig samþykkir sveitarstjórn að fela byggðarráði að afgreiða til fullnaðar eftirtalin verkefni vegna alþingiskosninganna: að staðfesta kjörskrá, úrskurða um breytingar á kjörskrá og ráða til lykta öðrum málum sem kunna að heyra undir verksvið sveitarstjórnar í sambandi við kosningar.

Borið upp til afgreiðslu og samþykkt með níu atkvæðum.

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar - 980. fundur - 10.09.2021

Byggðarráð samþykkir að kjörstaður í Fljótum vegna alþingiskosninga 2021 verði í Félagsheimilinu Ketilási í stað Sólgarðaskóla og vísar erindinu til sveitarstjórnar til staðfestingar.

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 414. fundur - 10.09.2021

Vísað frá fundi byggðarráðs 980. fundi til afgreiðslu sveitarstjórnar.

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjaðar samþykkir með níu atkvæðum, að kjörstaður í Fljótum vegna alþingiskosninga 2021 verði í Félagsheimilinu Ketilási í stað Sólgarðaskóla.