Umhverfis- og samgöngunefnd - 182
Málsnúmer 2107008F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 413. fundur - 18.08.2021
Fundargerð 182. fundar umhverfis- og samgöngunefndar frá 16. ágúst 2021 lögð fram til afgreiðslu á 416. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Regína Valdimarsdóttir varaforseti, kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Umhverfis- og samgöngunefnd - 182 Björn Magnús Árnason, frá verkfræðistofunni Stoð kynnir deiliskipulag hafnarsvæðis á Sauðárkróki sem samþykkt var á fundi Umhverfis- og samgöngunefndar þann 21.6.2021. Smávægilegar breytingar hafa orðið í frekari vinnslu málsins.
Umhverfis- og samgöngunefnd þakkar Birni Magnúsi fyrir kynninguna. Bókun fundar Afgreiðsla 182. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 413. fundi sveitarstjórnar 18. ágúst 2021 með níu atkvæðum. -
Umhverfis- og samgöngunefnd - 182 Umhverfis- og samgöngunefnd hefur borist erindi frá Golfklúbbi Skagafjarðar þess efnis að nefndin hafi 18 holu golfvöll til hliðsjónar við hönnun á svæðinu.
Umhverfis- og samgögunefnd líst vel á hugmynd golfklúbbsins um blandað útivistarsvæði þar sem að hægt verði að sameina golf og aðra útvist, svo sem göngu, skokk og hjólreiðar.
Umhverfis- og samgöngunefnd hefur ekki umboð til að meðhöndla skipulagsmál og vísar erindinu til Skipulags-og bygginganefndar og bendir á að frestur til að gera athugasemdir við aðalskipulagið rennur út 13.09.2021. Bókun fundar Afgreiðsla 182. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 413. fundi sveitarstjórnar 18. ágúst 2021 með níu atkvæðum. - .3 2105280 Tillaga þjónustusviðs Vegagerðarinnar um lækkun hámarkshraða á Sauðárkróksbraut 75-03, 04 og 05Umhverfis- og samgöngunefnd - 182 Forseti sveitarstjórnar gerir tillögu um að vísa málinu aftur til afgreiðslu umhverfis og samgöngunefndar. Samþykkt samhljóða í sveitarstjórn 30.06.2021
Málið var áður á dagskrá nefndarinnar á 181. fundi 21. júní sl. en var vísað aftur til nefndarinnar frá 412. fundi sveitarstjórnar Sveitarfélagsins Skagafjarðar 30. júní sl.
Umhverfis og samgöngunefnd hefur jafnframt borist áskorun frá íbúum í Hegranesi og austan vatna um að hafna tillögu þjónustusviðs Vegagerðarinnar um lækkun á hámarkshraða um Borgarsand frá Ósabrú að Sauðárkróki. Til vara að tillagan verði endurskoðuð með eðlilegri og nærgætnari nálgun að lækka umferðarhraða að afleggjara hesthúsahverfis.
Umhverfis- og samgöngunefnd þykir sýnt að mikils misskilnings gæti í þessu máli. Tillaga Vegagerðarinnar er sú að lækka umferðarhraða stuttu austan gatnamóta við hesthúsahverfið en ekki að lækka umferðarhraða frá Ósbrú að Sauðárkróki. Tillagan er lögð fram í kjölfarið á úttekt á umferðaröryggi þjóðvega í þéttbýli Skagafjarðar. Umhverfis og samgöngunefnd telur að nefndin þurfi að fá kynningu á úttekt Vegagerðarinnar og óskar því eftir að fá fulltrúa Vegagerðarinnar á fund nefndarinnar áður en niðurstaða fæst í málið.
Bókun fundar Afgreiðsla 182. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 413. fundi sveitarstjórnar 18. ágúst 2021 með níu atkvæðum.