Drög að breytingarreglugerð í Samráðsgátt - Jöfnunarsjóður sveitarfélaga
Málsnúmer 2110066
Vakta málsnúmerByggðarráð Svf. Skagafjarðar - 986. fundur - 20.10.2021
Málið áður á dagskrá 985. fundar byggðarráðs. Lagt fram bréf til allra sveitarfélaga frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, dagsett 6. október 2021 varðandi drög að reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 1088/2018 um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. Sveitarfélögum og öðrum hagaðilum er veitt færi á að koma á framfæri sínum sjónarmiðum vegna breytingarinnar í Samráðsgátt til lok dags 20. október 2021.
Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að rýna málið og það tekið aftur á dagskrá næsta fundar.