Félags- og tómstundanefnd - 295
Málsnúmer 2111001F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 417. fundur - 24.11.2021
Fundargerð 295. fundar félags- og tómstundanefndar frá 9. nóvember 2021 lögð fram til afgreiðslu á 417. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Regína Valdimarsdóttir varaforseti, kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Félags- og tómstundanefnd - 295 Sviðstjóri og starfsmenn fjölskyldusviðs fóru yfir drög að fjárhagsáætlun fyrir félagsþjónustu og frístundaþjónustu. Unnið hefur verið ítarlega að skiptingu fjármuna á milli stofnana og liða frá síðasta fundi. Áætlunin verður afgreidd á næsta fundi nefndarinnar þann 25. nóvember n.k. Vísað til byggðaráðs. Bókun fundar Afgreiðsla 295. fundar félags- og tómstundanefndar staðfest á 417. fundi sveitarstjórnar 24. nóvember 2021 með níu atkvæðum.
-
Félags- og tómstundanefnd - 295 Lögð fram ósk frá Molduxa íþróttafélagi um afnot af íþróttahúsinu á Sauðárkróki annan í jólum. Erindið samþykkt. Guðný Axelsdóttir óskar bókað að hún sitji hjá við afgreiðslu málsins. Bókun fundar Afgreiðsla 295. fundar félags- og tómstundanefndar staðfest á 417. fundi sveitarstjórnar 24. nóvember 2021 með níu atkvæðum.
-
Félags- og tómstundanefnd - 295 Skýrsla um starfsemi vinnuskólans sumarið 2021, lögð fram til kynningar. Bókun fundar Afgreiðsla 295. fundar félags- og tómstundanefndar staðfest á 417. fundi sveitarstjórnar 24. nóvember 2021 með níu atkvæðum.
-
Félags- og tómstundanefnd - 295 Bókun fundar Afgreiðsla 295. fundar félags- og tómstundanefndar staðfest á 417. fundi sveitarstjórnar 24. nóvember 2021 með níu atkvæðum.