Umhverfis- og samgöngunefnd - 185
Málsnúmer 2111016F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 419. fundur - 15.12.2021
Fundargerð 185. fundar umhverfis- og samgöngunefndar frá 20. desember 2021 lögð fram til afgreiðslu á 41. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Regína Valdimarsdóttir kynnti fundargerð. Gisli Sigurðsson, Bjarni Jónsson og Ólafur Bjarni Haraldsson kvöddu sér hljóðs.
-
Umhverfis- og samgöngunefnd - 185 Lögð voru fram drög að fjárhagsáætlun Skagafjarðarhafna fyrir árið 2022.
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir framlögð drög og vísar til byggðarráðs.
Dagur Þór Baldvinsson sat þennan lið. Bókun fundar Afgreiðsla 185. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 419. fundi sveitarstjórnar 15. desember 2021 með níu atkvæðum. -
Umhverfis- og samgöngunefnd - 185 Lagðar eru til breytingar á gjaldskrá Skagafjarðarhafna sem munu taka gildi 1. janúar 2022. Nýrri 15. gr. hefur verið bætt við er varðar þjónustu dráttarbáts. Hækkun verður á liðum 13. og 14. gr. vegna kaupa og reksturs á nýjum dráttarbáti. Lagt er til að aðrir liðir gjaldskrárinnar hækki um 3,5%.
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir tillöguna og vísar henni til byggðarráðs.
Dagur Þór Baldvinsson Hafnarstjóri sat þennan lið.
Bókun fundar Afgreiðsla 185. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 419. fundi sveitarstjórnar 15. desember 2021 með níu atkvæðum. -
Umhverfis- og samgöngunefnd - 185 Nýr dráttarbátur kom til hafnar á Sauðárkróki þann 22. nóvember. Báturinn er af gerðinni Damen árgerð 2007, knúinn tveimur aflvélum sem eru samtals 1500 KW eða 2000 hestöfl. Dráttarbáturinn mun verða mikil lyftistöng fyrir hafnarstarfsemina og auka öryggi sjófarenda til muna.
Hafnarstjóri gerir tillögu að nafni á dráttarbátnum, "Grettir sterki".
Nefndin samþykkir tillöguna og óskar Skagafjarðarhöfnum til hamingju með bátinn og fagnar þessum merka áfanga. Vígslan á bátnum verður við hátíðlega athöfn núna í desember.
Dagur Þór Baldvinsson sat þennan lið. Bókun fundar Afgreiðsla 185. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 419. fundi sveitarstjórnar 15. desember 2021 með níu atkvæðum. -
Umhverfis- og samgöngunefnd - 185 Lögð voru fram drög að fjárhagsáætlun fyrir málaflokk 08 - hreinlætismál árið 2022.
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir framlögð drög og vísar til byggðarráðs.
Bókun fundar Afgreiðsla 185. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 419. fundi sveitarstjórnar 15. desember 2021 með níu atkvæðum. -
Umhverfis- og samgöngunefnd - 185 Lögum samkvæmt ber sveitarfélögum að innheimta gjöld vegna meðhöndlunar úrgangs í samræmi við kostnað. Þessi skylda er áréttuð enn frekar í nýjum lögum um hringrásarhagkerfið. Þetta er Sveitarfélagið Skagafjörður því miður ekki að uppfylla í dag þar sem sveitarfélagið greiðir tugi milljóna með málaflokknum á ári hverju.
Lagt er til að gjaldskrá fyrir sorpurðun og sorphirðu verði hækkuð um 15% frá og með 1. janúar 2022 en þrátt fyrir þá hækkun verður gjaldskrá Sveitarfélagsins Skagafjarðar rétt neðan við meðaltal sambærilegra gjaldskráa hjá sveitarfélögum sem samanburður hefur verið gerður við. Jafnframt er lagt til að móttökugjöld fyrir einstaka efnisflokka verði hækkuð til samræmis við gjaldskrár Norðurár og ÓK gámaþjónustu/Flokku fyrir þá flokka.
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir tillöguna og vísar henni til byggðarráðs. Bókun fundar Afgreiðsla 185. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 419. fundi sveitarstjórnar 15. desember 2021 með níu atkvæðum. -
Umhverfis- og samgöngunefnd - 185 Lögð voru fram drög að fjárhagsáætlun málaflokks 10 - umferðar- og samgöngumál fyrir árið 2022.
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir framlögð drög og vísar til byggðarráðs. Bókun fundar Afgreiðsla 185. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 419. fundi sveitarstjórnar 15. desember 2021 með níu atkvæðum. -
Umhverfis- og samgöngunefnd - 185 Lögð voru fram drög að fjárhagsáætlun málaflokks 69 - fráveitu fyrir árið 2022.
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir framlögð drög og vísar til byggðarráðs. Bókun fundar Afgreiðsla 185. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 419. fundi sveitarstjórnar 15. desember 2021 með níu atkvæðum. -
Umhverfis- og samgöngunefnd - 185 Lagðar eru til eftirfarandi breytingar á gjaldskrá fráveitugjalda og tæmingu rotþróa sem taka munu gildi 1. janúar 2022.
Fráveitugjald fyrir íbúðarhúsnæði skal vera óbreytt, eða 0,186% af álagningarstofni. Fyrir annað húsnæði er fráveitugjaldið einnig óbreytt, 0,275% af álagningarstofni.
Gjald fyrir tæmingu rotþróa hækkar um 6,7%.
Hækkun gjalds fyrir tæmingu rotþróa endurspeglar raunkostnað á tæmingum undanfarin ár. Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir tillöguna og vísar henni til byggðarráðs. Bókun fundar Afgreiðsla 185. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 419. fundi sveitarstjórnar 15. desember 2021 með níu atkvæðum. -
Umhverfis- og samgöngunefnd - 185 Lögð var fram tillaga að 3,5% hækkun gjaldskrá hunda- og kattahalds fyrir árið 2022.
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir tillöguna og vísar til byggðarráðs. Bókun fundar Afgreiðsla 185. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 419. fundi sveitarstjórnar 15. desember 2021 með níu atkvæðum. -
Umhverfis- og samgöngunefnd - 185 Sveitarfélagið Skagafjörður og Hestamannafélagið Skagfirðingur gera með sér samkomulag um áframhaldandi uppbyggingu reiðvega í Sveitarfélaginu Skagafirði. Lögð voru fram samningsdrög milli Hestamannafélagsins Skagfirðings og Sveitarfélagsins Skagafjarðar þar sem samið er um að árleg framlög Sveitarfélagsins til uppbyggingar reiðvega í Skagafirði fyrir árin 2021 til 2025 verði 3,5 milljónir á ári.
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir samningsdrögin og vísar til byggðarráðs.
Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins "Samningur um reiðvegi". Samþykkt samhljóða. -
Umhverfis- og samgöngunefnd - 185 Lagt fram til kynningar bréf dagsett 2. nóvember 2021 frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga til allra sveitarfélaga varðandi boð um þátttöku sveitarfélaga í námskeiðinu Loftslagsvernd í verki, sem haldið er með gagnvirkum hætti yfir netið í Vefskóla Landverndar.
Umhverfis- og samgönngunefnd þakkar fyrir boðið og hvetur kjörna fulltrúa og starfsmenn til að taka virkan þátt í verkefninu. Bókun fundar Afgreiðsla 185. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 419. fundi sveitarstjórnar 15. desember 2021 með níu atkvæðum. -
Umhverfis- og samgöngunefnd - 185 Á fundi stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga sem haldinn var 29. október sl. var fjallað um þau verkefni sem eru framundan við innleiðingu hringrásarkerfis.
Stjórnin bókaði hvatningu til sveitarstjórna um allt land til að hefja nú þegar undirbúning fyrir gildistöku lagabreytinga um hringrásarhagkerfi sem taka gildi 1.janúar 2023.
Ljóst er að öll sveitarfélög munu þurfa að endurskoða þau stjórntæki sem þau hafa á grundvelli laga um meðhöndlun úrgangs, þ.e. svæðisáætlanir um meðhöndlun úrgangs, samþykktir um meðhöndlun úrgangs og gjaldskrár fyrir úrgangsmeðhöndlun. Bókun fundar Afgreiðsla 185. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 419. fundi sveitarstjórnar 15. desember 2021 með níu atkvæðum.