Iðutún 17 - Umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2112079
Vakta málsnúmerAfgreiðslufundur byggingarfulltrúa Svf Skagafjarðar - 136. fundur - 07.04.2022
Ásbjörn Óttarsson sækir um leyfi til að byggja einbýlishús á lóðinni númer 17 við Iðutún. Framlagðir aðaluppdrættir gerðir á Stoð ehf. verkfræðistofu af Magnúsi Frey Gíslasyni arkitekt. Uppdrættir eru í verki 79001801, númer A-100 til og með A-105, dagsettir 01.12.2021. Byggingaráform samþykkt.
Framlagðir aðaluppdrættir gerðir á Stoð ehf. verkfræðistofu af Magnúsi Frey Gíslasyni arkitekt. Uppdrættir eru í verki 7900180, númer A-100 til og með A-105, dagsettir 01.12.2021.
Fyrir liggur umsagnarbeiðni byggingarfulltrúa með vísan til 10.gr laga nr. 160/2010 um mannvirki varðandi framlagða uppdrætti.
Skipulags- og byggingarnefnd gerir ekki athugasemdir við að byggingarfulltrúi veiti umbeðið byggingarleyfi enda fellur ætluð framkvæmd innan byggingarreits.