Allir vinna
Málsnúmer 2112160
Vakta málsnúmerByggðarráð Svf. Skagafjarðar - 996. fundur - 22.12.2021
Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar skorar á fjárlaganefnd Alþingis og þingmenn alla að beita sér fyrir framlengingu á átakinu Allir vinna til a.m.k. eins árs. Í verkefninu felst 100% endurgreiðsla virðisaukaskatts af vinnu manna við íbúðarhúsnæði, frístundahúsnæði, mannvirkja í eigu tiltekinna félagasamtaka og bílaviðgerða. Verkefnið hefur skilað auknum umsvifum og atvinnu með afar jákvæðum hætti á mjög mikilvægum tímum heimsfaraldurs kórónuveiru.