Veitunefnd - 85
Málsnúmer 2202012F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 422. fundur - 09.03.2022
Fundargerð 85. fundar veitunefndar frá 20. febrúar 2022 lögð fram til afgreiðslu á 422. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Regína Valdimarsdóttir varaforseti kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Veitunefnd - 85 Hafin er vinna við hönnun stofnlagnar frá Langhúsum að Róðhóli. Frumhönnun lagnar er langt komin og vinna vegna samninga við landeigendur, sambands við Fiskistofu, Vegagerðina og Minjavernd er hafin. Fyrir liggur að vinna útboð á afhendingu lagnaefnis og gerð útboðslýsingar fyrir verkframkvæmd. Gert er ráð fyrir að verkið taki 2 - 3 ár í framkvæmd.
Bragi Þór Haraldsson frá verkfræðistofunni Stoð ehf fór yfir stöðu verkefnisins. Braga er þökkuð greinargóð framsetning og sviðsstjóra falið að sjá um að verkið verði sett í útboð sem fyrst. Bókun fundar Afgreiðsla 85. fundar veitunefndar staðfest á 422. fundi sveitarstjórnar 9. mars 2022 níu atkvæðum. -
Veitunefnd - 85 Vinna við hönnun tengingar hitaveitu að Hraunum í Fljótum er hafin. Gert er ráð fyrir talsverðri orkuþörf að Hraunum og að þar verði rekin umtalsverð starfsemi í framtíðinni.
Bragi Þór Haraldsson frá Verkfræðistofunni Stoð ehf fór yfir hönnunarforsendur verkefnisins en tengja þarf hitaveitu að Hraunum með 3 - 6 km stofnlögn. Sviðsstjóra er falið að vinna áfram að verkefninu með Stoð ehf ásamt starfsmönnum Skagafjarðarveitna.
Bókun fundar Afgreiðsla 85. fundar veitunefndar staðfest á 422. fundi sveitarstjórnar 9. mars 2022 níu atkvæðum. -
Veitunefnd - 85 Áformað er að bora út holu VH-22 sem boruð var síðasta haust og freista þess að ná heitu vatni upp með því að stefnubora út úr holunni. Gert er ráð fyrir að verkið verði unnið í maí eða júní á komandi vori.
Sviðsstjóri fór yfir stöðu mála og kynnti tilboð frá Ræktunarsambandi Flóa og Skeiða í framkvæmdina. Sviðsstjóra er falið að ganga til samninga við verktakann um verkið.
Bókun fundar Afgreiðsla 85. fundar veitunefndar staðfest á 422. fundi sveitarstjórnar 9. mars 2022 níu atkvæðum. -
Veitunefnd - 85 Samið var við Ísor um mælingar og rannsókn á holu SK-28. Mælingarnar gáfu til kynna að hægt væri að setja kapaldælu á dýpi sem áður hefur ekki verið talið mögulegt. Þessi niðurstaða gefur vonir um að hægt verði að ná meira magni og jafnvel heitara vatni en talið hefur verið hingað til.
Sviðsstjóri fór yfir skýrslu frá Ísor um mælingarnar en niðurstaðan gefur góðar vonir um framhald vinnslu á heitu vatni í Hrolleifsdal. Bókun fundar Afgreiðsla 85. fundar veitunefndar staðfest á 422. fundi sveitarstjórnar 9. mars 2022 níu atkvæðum. -
Veitunefnd - 85 Samið hefur verið við fyrirtækið Vermi um afhendingu á kapaldælu (djúpdælu) sem setja á niður á um 260 m dýpi í holuna. Vonir standa til að hægt verði að vinna meira vatn og jafnvel heitara upp úr holunni með því að fara svo djúpt með dæluna.
Sviðsstjóri og verkefnisstjóri Skagafjarðarveitna fóru yfir stöðu mála og upplýstu að áætlun geri ráð fyrir að dælan verði komin í gagnið um páska. Bókun fundar Afgreiðsla 85. fundar veitunefndar staðfest á 422. fundi sveitarstjórnar 9. mars 2022 níu atkvæðum.