Framkvæmdasjóður ferðamannastaða umsókn - Ketubjörg 2. hluti
Málsnúmer 2203009
Vakta málsnúmerAtvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 1. fundur - 20.06.2022
Lagt fyrir nefndina samningur um styrk frá Framkvæmdasjóði Ferðamannastaða fyrir verkefnið Ketubjörg - Aðgengi og öryggi ferðamanna - 2. hluti. Styrkurinn er veittur til að gera tvö bílastæði á tveimur stöðum. Merkingar og leiðarvísar verða settir víða um svæðið, nýir göngustígar lagðir og viðeigandi öryggisráðstafanir verða gerðar við björgin með grindverkum. Grjóthleðslur verða notaðar sem fallvörn við útsýnisstaði.