Byggðarráð Skagafjarðar - 1010
Málsnúmer 2204001F
Vakta málsnúmer
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 1010
Lagður fram ársreikningur Sveitarfélagsins Skagafjarðar og stofnana fyrir árið 2021. Kristján Jónasson lögg. endurskoðandi hjá KPMG ehf. fór yfir og kynnti ársreikninginn fyrir fundarmönnum. Stefán Vagn Stefánsson sveitarstjórnarfulltrúi sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Byggðarráð samþykkir að vísa ársreikningnum til fyrri umræðu í sveitarstjórn.
Bókun fundar
Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til sérliðar 24, Ársreikningur 2021 - Sveitarfélagið Skagafjörður. Samþykkt samhljóða.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 1010
Lagt fram til kynningar ódagsett bréf til bæjar-/byggðarráða og framkvæmdastjóra sveitarfélaga sem barst með tölvupósti þann 28. mars 2022 varðandi verkefnið Römpum upp Ísland. Markmið verkefnisins er að auka aðgengi hreyfihamlaðra að þjónustu, verslun og veitingahúsum á Íslandi.
Bókun fundar
Afgreiðsla 1010. fundar byggðarráðs staðfest á 423. fundi sveitarstjórnar 6. apríl 2022 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 1010
Lögð fram drög að endurskoðuðum reglum um úthlutun lóða á Nöfum.
Byggðarráð samþykkir reglurnar með áorðnum breytingum.
Ingibjörg Huld Þórðardóttir óskar bókað að hún taki ekki þátt í afgreiðslu málsins.
Bókun fundar
Afgreiðsla 1010. fundar byggðarráðs staðfest á 423. fundi sveitarstjórnar 6. apríl 2022 með níu atkvæðum.
Ingibjörg Huld Þórðardóttir óskar bókað að hún sitji hjá.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 1010
Lögð fram umsókn dagsett 27. mars 2022, um styrk til greiðslu fasteignaskatts 2022 frá Sálarrannsóknarfélagi Skagafjarðar.
Byggðarráð samþykkir að fella niður fasteignaskatt af framangreindri fasteign um 30% samkvæmt reglum sveitarfélagsins þar um.
Bókun fundar
Afgreiðsla 1010. fundar byggðarráðs staðfest á 423. fundi sveitarstjórnar 6. apríl 2022 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 1010
Lagður fram tölvupóstur dagsettur 30. mars 2022 frá nefndasviði Alþingis. Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um fjarskipti, 461. mál. Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 13. apríl nk.
Bókun fundar
Afgreiðsla 1010. fundar byggðarráðs staðfest á 423. fundi sveitarstjórnar 6. apríl 2022 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 1010
Lagt fram til kynningar bréf til allra sveitarfélaga frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsett 25. mars 2022 varðandi viðmiðunarreglur um framlög til stjórnmálaflokka.
Bókun fundar
Afgreiðsla 1010. fundar byggðarráðs staðfest á 423. fundi sveitarstjórnar 6. apríl 2022 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 1010
Lagt fram til kynningar bréf til allra sveitarfélaga frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsett 30. mars 2022 varðandi átak um Hringrásarhagkerfið.
Bókun fundar
Afgreiðsla 1010. fundar byggðarráðs staðfest á 423. fundi sveitarstjórnar 6. apríl 2022 með níu atkvæðum.
Ingibjörg Huld Þórðardóttir óskar bókað að hún sitji hjá við afgreiðslu 4.3.