Fara í efni

Landbúnaðarnefnd - 228

Málsnúmer 2204007F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 424. fundur - 04.05.2022

Fundargerð 228. fundar landbúnaðarnefndar frá 25. apríl 2022 lögð fram til afgreiðslu á 424. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Stefán Vagn Stefánsson forseti kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Landbúnaðarnefnd - 228 Með tilvísun í bókun landbúnaðarnefndar á 226. fundi nefndarinnar þann 17. mars 2022, þá samþykkir landbúnaðarnefnd framlagaða tillögu um að greiða upp í útlagðan kostnað með inneignarkortum vegna eldsneytis. Fjármagnið vegna þessa verði tekið af framlögum til fjallskiladeilda árið 2022.
    Bókun fundar Afgreiðsla 228. fundar landbúnaðarnefndar staðfest á 424. fundi sveitarstjórnar 4. maí 2022 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðarnefnd - 228 Lagður fram tölvupóstur dagsettur 12. apríl 2022 þar sem innviðaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 68/2022, „Drög að reglugerð um breytingu á reglugerð um girðingar meðfram vegum nr. 930/2012, með síðari breytingum“. Umsagnarfrestur er til 25. apríl 2022.
    Landbúnaðarnefnd er sammála um að fjárhæðír í reglugerðardrögunum séu verulega vanreiknaðar.
    Landbúnaðarnefnd samþykkir að fela Kára Gunnarssyni umhverfis- og landbúnaðarfulltrúa að senda inn umsögn í samræmi við umræður á fundinum.
    Bókun fundar Afgreiðsla 228. fundar landbúnaðarnefndar staðfest á 424. fundi sveitarstjórnar 4. maí 2022 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðarnefnd - 228 Lagður fram til kynningar ársreikningur Fjallskilasjóðs Sauðárkróks fyrir árið 2021. Bókun fundar Afgreiðsla 228. fundar landbúnaðarnefndar staðfest á 424. fundi sveitarstjórnar 4. maí 2022 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðarnefnd - 228 Lögð fram drög að áætlun um minka- og refaveiði ársins 2022. Fjárhæðir verðlauna vegna veiða var samþykkt á 226. fundi landbúnaðarnefndar þann 17. mars s.l. Undir þessum dagskrárlið komu refa- og minkaveiðimenn til viðræðu um tilhögun veiðanna árið 2022. Mættir voru: Birgir Hauksson, Steinþór Tryggvason, Kristján B. Jónsson, Garðar Páll Jónsson, Hans Birgir Friðriksson, Stefán Ingi Sigurðsson, Friðrik Andri Atlason, Herbert Hjálmarsson, Jón Númason, Hafþór Gylfason og Egill Yngvi Ragnarsson.
    Landbúnaðarnefnd samþykkir framlagða veiðiáætlun og úthlutun eftir veiðisvæðum. Nefndin samþykkir breytingu á áðursamþykktri gjaldskrá, þannig að greiðsla fyrir unna hvolpafulla refalæðu verði tvöföld (grendýr) gegn því að stafræn mynd með staðsetningu fylgi reikningi.
    Bókun fundar Afgreiðsla 228. fundar landbúnaðarnefndar staðfest á 424. fundi sveitarstjórnar 4. maí 2022 með níu atkvæðum.
  • Landbúnaðarnefnd - 228 Farið yfir uppfærða áætlun á viðgerðarkostnaði við Árhólarétt. Steypuskemmdir eru víðtækari en álitið var í fyrstu og þörf á meiri uppbyggingu stólpa og veggja. Kostnaðarauki er tölverður.
    Landbúnaðarnefnd samþykkir að setja viðgerðir á Árhólarétt í forgang vegna fjármagns frá eignasjóði til viðhalds skilarétta á árinu 2022.
    Bókun fundar Afgreiðsla 228. fundar landbúnaðarnefndar staðfest á 424. fundi sveitarstjórnar 4. maí 2022 með níu atkvæðum.