Fara í efni

Byggðarráð Skagafjarðar - 1011

Málsnúmer 2204009F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 424. fundur - 04.05.2022

Fundargerð 1011. fundar byggðarráðs frá 13. apríl 2022 lögð fram til afgreiðslu á 424. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Stefán Vagn Stefánsson forseti kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 1011 Lagður fram tölvupóstur frá Öryrkjabandalagi Íslands, dagsettur 8. apríl 2022, þar sem bandalagið vekur athygli á opnum fundi með forystu ÖBÍ og Þroskahjálpar og frambjóðendum til sveitarstjórnar í Skagafirði. Fundurinn verður haldinn á KK restaurant miðvikudaginn 4. maí n.k. Bókun fundar Afgreiðsla 1011. fundar byggðarráðs staðfest á 424. fundi sveitarstjórnar 4. maí 2022 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 1011 Lagt fram aðalfundarboð Norðurár bs. vegna aðalfundar þann 20. apríl 2022.
    Byggðarráð samþykkir að sveitarstjóri verði fulltrúi sveitarfélagsins á fundinum og fari með atkvæðisrétt þess.
    Bókun fundar Afgreiðsla 1011. fundar byggðarráðs staðfest á 424. fundi sveitarstjórnar 4. maí 2022 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 1011 Lagt fram bréf frá sýslumannsembættinu á Norðurlandi vestra, mál 2022-010445, dagsett 4. apríl 2022. Óskað er eftir umsögn um umsókn Körfuknattleiksdeildar Tindastóls, kt. 690390-1169, um tækifærisleyfi vegna Páskaskemmtunar Tindastóls í Íþróttahúsinu á Sauðárkróki þann 16. apríl 2022.
    Byggðarráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina.
    Bókun fundar Afgreiðsla 1011. fundar byggðarráðs staðfest á 424. fundi sveitarstjórnar 4. maí 2022 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 1011 Lagt fram bréf frá sýslumannsembættinu á Norðurlandi vestra, mál 2022-010778, dagsett 6. apríl 2022. Óskað er eftir umsögn um umsókn Friðriks Rúnars Friðrikssonar um tækifærisleyfi vegna Vorfagnaðar í Árgarði þann 30. apríl 2022.
    Byggðarráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina.
    Bókun fundar Afgreiðsla 1011. fundar byggðarráðs staðfest á 424. fundi sveitarstjórnar 4. maí 2022 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 1011 Reglur Sveitarfélagsins Skagafjarðar um framkvæmd frístundaþjónustu við fötluð börn lagðar fram. Reglur þessar byggja á lögum nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir og leiðbeiningum félagsmálaráðuneytisins frá 20. desember 2019 um framkvæmd frístundaþjónustu. Einnig lagðar fram bókanir félags- og tómstundanefndar frá 300. fundi þann 10. mars 2022 og 178. fundi fræðslunefndar þann 30. mars 2022.
    Byggðarráð samþykkir reglurnar og vísar þeim til afgreiðslu sveitarstjórnar.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til sérliðar, Reglur um frístundaþjónustu fyrir fötluð börn. Samþykkt samhljóða.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 1011 Lagður fram tölvupóstur dagsettur 4. apríl 2022 frá innviðaráðuneyti. Innviðaráðuneytið birtir í samráðsgátt, til umsagnar, drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lagaákvæðum vegna tilfærslu fasteignaskrár frá Þjóðskrá Íslands til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.
    Umsagnarfrestur er 01.04.2022-11.04.2022. Umsagnir verða birtar jafnóðum og þær berast.
    Byggðarráð fagnar þeim breytingum sem frumvarpsdrögin gera ráð fyrir.
    Bókun fundar Afgreiðsla 1011. fundar byggðarráðs staðfest á 424. fundi sveitarstjórnar 4. maí 2022 með níu atkvæðum.