Fara í efni

Skarðseyri 1 og 2 (143320) (143722) - Umsókn um deiliskipulag og byggingarreit.

Málsnúmer 2204167

Vakta málsnúmer

Skipulags- og byggingarnefnd - 432. fundur - 27.04.2022

Ásmundur J. Pálmason fyrir hönd Steypustöðvar Skagafjarðar ehf., þinglýsts lóðarhafa lóðanna Skarðseyri 1, L143320 og Skarðseyri 2, L143722 óska eftir heimild til að láta vinna tillögu að deiliskipulagi fyrir lóðirnar á kostnað framkvæmdaraðila skv. 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Meðfylgjandi vinnuskrá, dags. 25.04.2022 gerir grein fyrir afmörkun skipulagssvæðis sem er 23.163 m² að stærð og er í samræmi við bókun skipulags- og byggingarnefndar af 405. fundi þann 29.04.2021.

Skipulags- og byggingarnefnd heimilar að falla frá gerð lýsingar þar sem meginforsendur liggi fyrir í gildandi aðalskipulagi sveitarfélagsins 2020-2035, sbr. ákvæði 5.2.2. gr. skipulagsreglugerðar nr. 90/2013 og falli ekki undir lög nr. 111/2021 um umhverfismat framkvæmda og áætlana.
Þó verði unnið mat á líklegum áhrifum fyrirhugaðra framkvæmda á valda umhverfisþætti skv. 5.4.1. gr. skipulagsreglugerðar nr. 90/2013.

Einnig óskað eftir heimild til að stofna 546 m² byggingarreit á lóð nr. 1 við Skarðseyri, L143320, eins og sýnt er í meðfylgjandi vinnuskrá í verki nr. 35120101 dags. 25.04.2022. Reitur í samræmi við fyrirhugaða tillögu að deiliskipulagi.

Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir umbeðinn byggingarreit og leggur jafnframt fram við sveitarstjórn að heimila umbeðna deiliskipulagsgerð sbr. 2. mrg 38.gr laga nr.123/2010.

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 424. fundur - 04.05.2022

Vísað frá 432. fundi skipulags- og byggingarnefndar frá 27. apríl 2022 til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:

"Ásmundur J. Pálmason fyrir hönd Steypustöðvar Skagafjarðar ehf., þinglýsts lóðarhafa lóðanna Skarðseyri 1, L143320 og Skarðseyri 2, L143722 óska eftir heimild til að láta vinna tillögu að deiliskipulagi fyrir lóðirnar á kostnað framkvæmdaraðila skv. 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Meðfylgjandi vinnuskrá, dags. 25.04.2022 gerir grein fyrir afmörkun skipulagssvæðis sem er 23.163 m² að stærð og er í samræmi við bókun skipulags- og byggingarnefndar af 405. fundi þann 29.04.2021.

Skipulags- og byggingarnefnd heimilar að falla frá gerð lýsingar þar sem meginforsendur liggi fyrir í gildandi aðalskipulagi sveitarfélagsins 2020-2035, sbr. ákvæði 5.2.2. gr. skipulagsreglugerðar nr. 90/2013 og falli ekki undir lög nr. 111/2021 um umhverfismat framkvæmda og áætlana.
Þó verði unnið mat á líklegum áhrifum fyrirhugaðra framkvæmda á valda umhverfisþætti skv. 5.4.1. gr. skipulagsreglugerðar nr. 90/2013.

Einnig óskað eftir heimild til að stofna 546 m² byggingarreit á lóð nr. 1 við Skarðseyri, L143320, eins og sýnt er í meðfylgjandi vinnuskrá í verki nr. 35120101 dags. 25.04.2022. Reitur í samræmi við fyrirhugaða tillögu að deiliskipulagi.

Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir umbeðinn byggingarreit og leggur jafnframt fram við sveitarstjórn að heimila umbeðna deiliskipulagsgerð sbr. 2. mrg 38.gr laga nr.123/2010."

Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjaðar samþykkir umbeðinn byggingarreit, með níu atkvæðum og samþykkir jafnframt að heimila umbeðna deiliskipulagsgerð sbr. 2. mrg 38.gr laga nr.123/2010."