Viðvík land 178681 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2206047
Vakta málsnúmerAfgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 4. fundur - 17.08.2022
Þórir Guðmundsson sækir f.h. Guðríðar B. Magnúsdóttur og Kára Ottóssonar um leyfi til að byggja íbúðarhús á landinu Viðvík land, L178681. Framlagðir aðaluppdrættir gerðir á Teiknistofu Þ. Guðmundssonar af Þóri Guðmundssyni byggingarfræðingi. Uppdrættir í verki HA22106, númer A-101, A102 og A-103 dagsettir 20. maí 2022. Byggingaráform samþykkt.