Fara í efni

Ljósleiðarinn ehf. - umsókn um framkvæmdaleyfi

Málsnúmer 2207092

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 1. fundur - 29.07.2022

Elísabet Guðbjörnsdóttir sækir um fyrir hönd Ljósleiðarans um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu ljósleiðara á Sauðárkróki samsíða Sauðárkróksbraut frá Borgarlandi að Strandvegi.

Ídráttarrörið er 20 mm svert, 317 m að lengd og verður rekið undir Sauðárkróksbraut. Óskað er eftir að framkvæma innan sveitafélagsmarka utan veghelgunarsvæðis. Ekki þarf að bæta við brunnum þar sem tengt verður inn í núverandi brunna Mílu og Orkufjarskipta. Framkvæmdaraðili fyrir hönd Ljósleiðarans verður Steypustöð Skagafjarðar. Innmældum gögnum verður skilað inn til sveitarfélagsins við verklok.
Meðfylgjandi er afrit af leyfi og umsögn Vegagerðarinnar.
Skipulagsfulltrúi samþykkir umbeðnar framkvæmdir og gefur út framkvæmdaleyfi á grundvelli reglugerðar.

Skipulagsnefnd - 4. fundur - 11.08.2022

Lögð fram til kynningar fundargerð frá afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa nr. 1 þann 29.07.2022.