Fara í efni

Bárustígur 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2208219

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 5. fundur - 30.08.2022

Ingvar Gýgjar Sigurðarson sækir f.h. Rakelar Kemp Guðnadóttur og Maríu Önnu Kemp Guðmundsdóttur um leyfi til að byggja við og breyta innangerð íbúðarhúss sem stendur á lóðinni númer 1 við Bárustíg. Verkinu verður áfangaskipt. 1. áfangi breytingar á innangerð. 2. áfangi viðbygging. Framlagðir aðaluppdrættir gerðir af Ingvari Gýgjar Sigurðarsyni tæknifræðingi. Uppdrættir í verki 3208, númer A-101, A-102 og A-103, dagsettir 22. ágúst 2022. Byggingaráform samþykkt.