Hofsáin hefur gengið mjög á bakka í landi Hrauns í Unadal síðustu ár. Tæpt var að hún tæki þarna af slóð, sem farin er með fé og vagna niður til Árhólaréttar. Slóðinn er einnig notaður af veiðimönnum. Farið var í bakkavarnir og vegabætur á árinu 2022 og kostað þónokkru til. Landbúnaðarnefnd samþykkir að leitað verði til Veiðifélags Unadalsár um framlag vegna þessara framkvæmda.
Landbúnaðarnefnd samþykkir að leitað verði til Veiðifélags Unadalsár um framlag vegna þessara framkvæmda.