Fara í efni

Endurgreiðsla reiknings vegna framkvæmda við reiðhöllina Svaðastaði

Málsnúmer 2209355

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Skagafjarðar - 17. fundur - 10.10.2022

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 30. september 2022 frá Árna Gunnarssyni f.v. stjórnarformanni Flugu ehf., varðandi kostnað sem félagið stofnaði til við Tjarnarbæ og reiðhöllina Svaðastaði að fjárhæð 570.000 kr. m. vsk.
Byggðarráð samþykkir að greiða reikning frá Flugu ehf. vegna þessa verks sem unnið var meðal annars á lóð sveitarfélagsins. Byggðarráð minnir á mikilvægi þess að ekki sé stofnað til útgjalda án fyrirliggjandi heimilda.