Fara í efni

Félagsmála- og tómstundanefnd - 5

Málsnúmer 2210009F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Skagafjarðar - 6. fundur - 16.11.2022

Fundargerð 5. fundar félagsmála- og tómstundanefndar frá 20. október 2022 lögð fram til afgreiðslu á 6. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Sólborg Borgarsdóttir forseti kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Félagsmála- og tómstundanefnd - 5 Farið var yfir reglur sveitarfélagsins sem tilheyra málaflokki 06, frístundaþjónustu. Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir að taka reglurnar til afgreiðslu á næsta fundi eftir því sem hægt er í samræmi við umræður og tillögur að breytingum sem þegar hafa komið fram. Einnig þarf að uppfæra allar reglur með tilliti til sameinaðs sveitarfélags. Bókun fundar Afgreiðsla 5. fundar félagsmála- og tómstundanefndar staðfest á 6. fundi sveitarstjórnar 16. nóvember 2022 með níu atkvæðum.
  • Félagsmála- og tómstundanefnd - 5 Fjallað var um reglur fyrir Ungmennaráð Skagafjarðar. Félagsmála- og tómstundanefnd er sammála um að boða til fundar í Ungmennaráði hið fyrsta. Óskað verði eftir tilnefningum fjögurra einstaklinga til tveggja ára og þremur til eins árs. Þetta er gert með hliðsjón af væntanlegum breytingum á reglunum sem kveða á um skörun tilnefninga þannig að einungis skuli endurnýja helming ráðsins árlega. Að öðru leyti munu reglurnar koma til afgreiðslu nefndarinnar í tengslum við afgreiðslu fjárhagsáætlunar. Bókun fundar Afgreiðsla 5. fundar félagsmála- og tómstundanefndar staðfest á 6. fundi sveitarstjórnar 16. nóvember 2022 með níu atkvæðum.
  • Félagsmála- og tómstundanefnd - 5 Farið var yfir reglur sveitarfélagsins sem tilheyra málaflokki 02, félagsþjónustu. Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir að taka reglurnar til afgreiðslu á næsta fundi eftir því sem hægt er í samræmi við umræður og tillögur að breytingum sem þegar hafa komið fram. Einnig þarf að uppfæra allar reglur með tilliti til sameinaðs sveitarfélags. Bókun fundar Afgreiðsla 5. fundar félagsmála- og tómstundanefndar staðfest á 6. fundi sveitarstjórnar 16. nóvember 2022 með níu atkvæðum.
  • Félagsmála- og tómstundanefnd - 5 Farið var yfir reglur sveitarfélagsins sem tilheyra málaflokki 02, málefni fatlaðs fólks. Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir að taka reglurnar til afgreiðslu á næstu fundum eftir því sem hægt er, en reglurnar taka mið af Þjónustusamningi um þjónustu við fatlað fólk á Norðurlandi vestra. Einnig þarf að uppfæra allar reglur með tilliti til sameinaðs sveitarfélags. Bókun fundar Afgreiðsla 5. fundar félagsmála- og tómstundanefndar staðfest á 6. fundi sveitarstjórnar 16. nóvember 2022 með níu atkvæðum.
  • Félagsmála- og tómstundanefnd - 5 Lagður fram fjárhagsrammi fyrir rekstrarárið 2023 ásamt forsendum rammans til fyrri umræðu í félagsmála- og tómstundanefnd. Farið var yfir fyrstu tillögu að skiptingu fjármuna á milli stofnana félagsmála og frístundamála. Skiptingin tekur mið af núverandi rekstri og aðstæðum. Ítrekað er að áætlunin mun taka breytingum samhliða áframhaldandi vinnu starfsmanna. Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir framlagðan fjárhagsramma 2023 og vísar til fyrri umræðu í byggðarráði og sveitarstjórn. Jafnframt felur nefndin sviðsstjóra og starfsmönnum að vinna áfram að gerð fjárhagsáætlunar og leggja fyrir nefndina til síðari umræðu. Bókun fundar Afgreiðsla 5. fundar félagsmála- og tómstundanefndar staðfest á 6. fundi sveitarstjórnar 16. nóvember 2022 með níu atkvæðum.
  • Félagsmála- og tómstundanefnd - 5 Rótarýklúbbur Sauðárkróks óskar eftir að fá afnot af íþróttahúsinu á Sauðárkróki endurgjaldslaust þann 26. nóvember n.k. vegna jólahlaðborðs Rótarýklúbbsins þar sem íbúum Skagafjarðar er boðið, þeim að kostnaðarlausu. Nefndin samþykkir að fella niður leigu á íþróttahúsinu vegna þessa. Bókun fundar Afgreiðsla 5. fundar félagsmála- og tómstundanefndar staðfest á 6. fundi sveitarstjórnar 16. nóvember 2022 með níu atkvæðum.
  • Félagsmála- og tómstundanefnd - 5 Eitt mál lagt fyrir. Fært í trúnaðarbók. Bókun fundar Afgreiðsla 5. fundar félagsmála- og tómstundanefndar staðfest á 6. fundi sveitarstjórnar 16. nóvember 2022 með níu atkvæðum.