Fara í efni

Byggðarráð Skagafjarðar - 19

Málsnúmer 2210029F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Skagafjarðar - 6. fundur - 16.11.2022

Fundargerð 19. fundar byggðarráðs frá 26. október 2022 lögð fram til afgreiðslu á 6. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Sólborg Borgarsdóttir forseti kynnti fundargerð. Álfhildur Leifsdóttir kvaddi sér hljóðs.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 19 Lagt fram bréf dagsett 30. september 2022 til sveitarfélaga á Norðurlandi frá Flugklasanum Air 66N sem hefur frá upphafi verið undir væng Markaðsstofu Norðurlands. Markmið klasans er að koma á beinu millilandaflugi um Akureyrarflugvöll all árið um kring til framtíðar. Óskað er eftir áframhaldandi stuðningi við verkefnið og farið er fram á 300 kr. framlag á hvern íbúa á ári í þrjú ár (2023-2025). Arnheiður Jóhannsdóttir framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands og Hjalti Páll Þórarinsson verkefnastjóri flugklasans komu á fund byggðarráðs til að fylgja erindinu eftir.
    Byggðarráð samþykkir að vísa erindinu til gerðar fjárhagsáætlunar.
    Bókun fundar Afgreiðsla 19. fundar byggðarráðs staðfest á 6. fundi sveitarstjórnar 16. nóvember 2022 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 19 Lagður fram tölvupóstur dagsettur 19. október 2022 frá Sótahnjúki ehf. Óska eigendur fyrirtækisins eftir umræðufundi með byggðarráði vegna áforma um áframhaldandi uppbyggingu ferðaþjónustu að Sólgörðum í Fljótum.
    Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að bjóða fulltrúum Sótahnjúks ehf. á fund byggðarráðs.
    Bókun fundar Afgreiðsla 19. fundar byggðarráðs staðfest á 6. fundi sveitarstjórnar 16. nóvember 2022 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 19 Umræður fóru fram um endurnýjun á samningi við Skagfirðingasveit, björgunarsveit. Bókun fundar Afgreiðsla 19. fundar byggðarráðs staðfest á 6. fundi sveitarstjórnar 16. nóvember 2022 með átta atkvæðum. Jóhanna Ey Harðardóttir óskar bókað að hún taki ekki þátt í afgreiðslu málsins og víkur af fundi.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 19 Lögð fram svohjóðandi bókun 6. fundar umhverfis- og samgöngunefndar: "Föstudaginn 30. september 2022 klukkan 11:00 voru opnuð tilboð í tilboðsverkið "Sorphirða fyrir heimili, stofnanir, gámastöðvar o.fl. í Skagafirði 2023-2028"
    Fjögur tilboð bárust í verkið. Íslenska Gámafélagið ehf var með lægsta boð eða upp á 115,9% af kostnaðaráætlun. Einnig komu tilboð frá Kubbur ehf upp á 137%, Terra Umhverfisþjónusta 187,5% og GS Lausnir 212,5% af áætlun.
    Nefndin leggur til að gengið verði til samninga við lægstbjóðenda með fyrirvara um að samningar náist og vísar málinu til ákvörðunar byggðarráðs."
    Byggðarráð staðfestir ákvörðun umhverfis- og samgöngunefndar og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til sérliðarins, "Sorphreinsun í Skagafirði - útboð 2021 - Efla". Samþykkt samhljóða.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 19 Með tölvupósti dagsettum 21. október 2022 óskar framboð Vg og óháðra eftir því að málefnið "Heilsuræktarstyrkur starfsmanna Skagafjarðar" verði tekið fyrir á byggðarráðsfundi og leggja fram eftirfarandi tvær tillögur:

    Lagt er til að reglur Heilsuræktarstyrk starfsmanna Skagafjarðar verði endurskoðaðar. Styrkurinn eins og hann er í dag hvetur einungis til eflingar líkamlegrar heilsu starfsmanna. Þessi styrkur ætti að efla bæði líkamlega og andlega sjálfseflingu og vellíðan starfsmanna Skagafjarðar og því leggjum við til að reglur verði endurskoðaðar út frá því sjónarmiði.
    Byggðarráð samþykkir að vinna að breytingum á reglum um heilsuræktarstyrk starfsmanna Skagafjarðar í þá veru að hann nái einnig til andlegrar sjálfseflingar. Jafnframt að reglum verði breytt í þá veru að starfsmenn sæki fyrst til stéttarfélags síns um styrk áður en sótt er um til sveitarfélagsins.

    Lagt er til að heilsustyrkur starfsmanna Skagafjarðar verði hækkaður úr 15.000 kr. í 30.000 kr. á ári.
    Byggðarráð samþykkir að vísa tillögunni til gerðar fjárhagsáætlunar 2023.
    Bókun fundar Afgreiðsla 19. fundar byggðarráðs staðfest á 6. fundi sveitarstjórnar 16. nóvember 2022 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 19 Lagðar fram verklagsreglur vegna afsláttar á dvalargjöldum í leikskólum, frístund og daggæslu í heimahúsum í Skagafirði lögð fram. Ekki eru gerðar efnislegar breytingar á reglunum en þær uppfærðar með hliðsjón af sameinuðu sveitarfélagi. Vísað frá 7. fundi fræðslunefndar.
    Byggðarráð samþykkir að vísa reglunum aftur til afgreiðslu fræðslunefndar.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til sérliðarins, "Verklagsreglur vegna afsláttar í leikskólum, frístund og daggæslu". Samþykkt samhljóða.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 19 Lagðar fram innritunarreglur fyrir Tónlistarskóla Skagafjarðar. Ekki eru gerðar efnislegar breytingar á reglunum en þær uppfærðar með hliðsjón af sameinuðu sveitarfélagi. Vísað frá 7. fundi fræðslunefndar.
    Byggðarráð samþykkir framlagðar reglur og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til sérliðarins, "Innritunarreglur fyrir Tónlistarskóla Skagafjarðar". Samþykkt samhljóða.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 19 Lagðar fram reglur um skólaakstur í dreifbýli Skagafjarðar. Ekki eru gerðar efnislegar breytingar á reglunum en þær uppfærðar með hliðsjón af sameinuðu sveitarfélagi. Vísað frá 7. fundi fræðslunefndar.
    Byggðarráð samþykkir framlagðar reglur og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til sérliðarins, "Reglur um skólaakstur í dreifbýli Skagafjarðar". Samþykkt samhljóða.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 19 Lagðar fram verklagsreglur vegna barna starfsfólks í leikskólum í Skagafirði. Ekki eru gerðar efnislegar breytingar á reglunum en þær uppfærðar með hliðsjón af sameinuðu sveitarfélagi. Vísað frá 7. fundi sveitarstjórnar.
    Byggðarráð samþykkir framlagðar reglur og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til sérliðarins, "Verklagsreglur vegna barna starfsfólks í leikskólum Skagafjarðar". Samþykkt samhljóða.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 19 Lagðar fram reglur um skólavist fósturbarna í leik- og grunnskólum Skagafjarðar. Ekki eru gerðar efnislegar breytingar á reglunum en þær uppfærðar með hliðsjón af sameinuðu sveitarfélagi. Vísað frá 7. fundi fræðslunefndar.
    Byggðarráð samþykkir framlagðar reglur og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til sérliðarins, "Reglur um skólavist fósturbarna í leik- og grunnskólum Skagafjarðar". Samþykkt samhljóða.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 19 Lagðar fram reglur um nám starfsmanna í leikskólum. Ekki eru gerðar efnislegar breytingar á reglunum en þær uppfærðar með hliðsjón af sameinuðu sveitarfélagi. Fræðslunefnd samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til sveitarstjórnar. Vísað frá 7. fundi fræðslunefndar.
    Byggðarráð samþykkir framlagðar reglur og vísar þeim til afgreiðslu sveitarstjórnar.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til sérliðarins, "Reglur um nám starfsmanna í leikskólum". Samþykkt samhljóða.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 19 Lögð fram gjaldskrá hitaveitu fyrir árið 2023 sem vísað var til byggðarráðs frá 3. fundi veitustjórnar með svohljóðandi bókun: "Hækkun neysluvísitölu síðustu tólf mánuði er 9,3% en út frá rekstrarstöðu hitaveitu er lögð fram tillaga um 7,7 % hækkun á gjaldskrá hitaveitu fyrir árið 2023. Hækkunin er til komin vegna fyrirsjáanlegra verðlagsbreytinga og viðhaldsframkvæmda. Við ákvörðun gjaldskrár er einnig tekið mið af langtímaáætlun um fjárfestingar í hitaveitu. Veitunefnd samþykkir framlagða gjaldskrá og vísar henni til afgreiðslu byggðarráðs."
    Byggðarráð samþykkir framlagða gjaldskrá og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til sérliðarins, "Gjaldskrá hitaveitu 2023". Samþykkt samhljóða.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 19 Lagður fram tölvupóstur dagsettur 20. október 2022 þar sem matvælaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 199/2022, "Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006 (orkuskipti)". Umsagnarfrestur er til og með 04.11.2022. Bókun fundar Afgreiðsla 19. fundar byggðarráðs staðfest á 6. fundi sveitarstjórnar 16. nóvember 2022 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 19 Lagður fram tölvupóstur dagsettur 21. október 2022 þar sem matvælaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 201/2022, "Greinagerð um stöðu vinnu við gerð sjávarútvegsstefnu". Umsagnarfrestur er til og með 20.11.2022. Bókun fundar Afgreiðsla 19. fundar byggðarráðs staðfest á 6. fundi sveitarstjórnar 16. nóvember 2022 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 19 Lagðar fram til kynningar skýrslur frá Verkís fyrir tímabilið júlí-september 2022, vegna vöktunar á rokgjörnum lífrænum efnum á því svæði sem hreinsunaraðgerðir hafa náð yfir vegna eldsneytisleka úr neðanjarðargeymi N1 ehf. við Kaupfélag Skagfirðinga, að Suðurbraut 9 á Hofsósi. Bókun fundar Afgreiðsla 19. fundar byggðarráðs staðfest á 6. fundi sveitarstjórnar 16. nóvember 2022 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 19 Lagt fram til kynningar bréf frá Eignarhaldsfélaginu Brunabótafélag Íslands, dagsett 18. október 2022 þar sem tilkynnt er um ágóðahlutagreiðslu ársins 2022 til sveitarfélagsins að fjárhæð 1.678.000 kr. Bókun fundar Afgreiðsla 19. fundar byggðarráðs staðfest á 6. fundi sveitarstjórnar 16. nóvember 2022 með níu atkvæðum.