Fjölmenningarteymi í Árskóla
Málsnúmer 2212040
Vakta málsnúmerFræðslunefnd - 10. fundur - 11.01.2023
Anna Steinunn Friðriksdóttir og Inga Lára Sigurðardóttir, sem skipa fjölmenningarteymi Árskóla ásamt Svavari Viktorssyni, komu á fundinn ásamt Óskari Björnssyni skólastjóra og kynntu starf teymisins sem unnið hefur hörðum höndum að því að efla fjölmenningarlegt samfélag Árskóla. Fræðslunefnd þakkar góða kynningu og fagnar faglegum vinnubrögðum teymisins við afar þarft verkefni sem móttaka og utanumhald nemenda með annað móðurmál en íslensku er. Nefndin hvetur teymið jafnframt til áframhaldandi góðra verka.