Byggðarráð Skagafjarðar - 31
Málsnúmer 2301016F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Skagafjarðar - 10. fundur - 15.02.2023
Fundargerð 31. fundar byggðarráðs frá 18. janúar 2023 lögð fram til afgreiðslu á 10. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Sólborg Borgarsdóttir forseti kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 31 Lögð fram umsókn dagsett 12. janúar 2023 frá Sálarrannsóknarfélagi Skagafjarðar um styrk til greiðslu fasteignaskatts 2023 af fasteigninni Skagfirðingabraut 9a, Sauðárkróki, F2132107.
Byggðarráð samþykkir að fella niður fasteignaskatt af framangreindri fasteign um 30% samkvæmt reglum sveitarfélagsins um styrki til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka skv. 2. mgr. 5. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995. Bókun fundar Afgreiðsla 31. fundar byggðarráðs staðfest á 10. fundi sveitarstjórnar 15. febrúar 2023 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 31 Lögð fram tillaga frá Álfhildi Leifsdóttur (Vg og óháð):
VG og óháð leggja til að sveitarfélagið eigi útdraganlegar sliskjur í áhaldahúsi til útláns í félagsheimili og til annarra eigna sveitarfélagisns þar sem aðgengi er ábótavant.
Byggðarráð samþykkir að beina því til ráðgefndi hóps um aðgengismál að kanna með innkaup á viðeigandi sliskjum fyrir sveitarfélagið. Bókun fundar Afgreiðsla 31. fundar byggðarráðs staðfest á 10. fundi sveitarstjórnar 15. febrúar 2023 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 31 Lögð fram Húsnæðisáætlun 2023 fyrir Skagafjörð.
Byggðarráð samþykkir að vísa áætluninni til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Afgreiðsla 31. fundar byggðarráðs staðfest á 10. fundi sveitarstjórnar 15. febrúar 2023 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 31 Málið áður á 12. fundi byggðarráðs þann 7. september 2022. Lagðar fram endurskoðaðar reglur sveitarfélagsins um kaup á skjávinnugleraugum.
Byggðarráð samþykkir reglurnar og vísar þeim til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til sérliðarins, "Reglur skjávinnugleraugu og umsóknareyðublað." Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 31 Lögð fram umsagnarbeiðni frá embætti sýslumannins á Norðurlandi vestra úr máli 2023-000880. ahsig ehf., Brekkukoti, 560 Varmahlíð, sækir um rekstrarleyfi, veitingaleyfi-D, Veisluþjónusta og veitingaverslun, samkomusalir.
Byggðarráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina. Bókun fundar Afgreiðsla 31. fundar byggðarráðs staðfest á 10. fundi sveitarstjórnar 15. febrúar 2023 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 31 Lagður fram tölvupóstur dagsettur 10. janúar 2023 þar sem dómsmálaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 4/2023, "Ný lög um nafnskírteini". Umsagnarfrestur er til og með 31.01. 2023. Bókun fundar Afgreiðsla 31. fundar byggðarráðs staðfest á 10. fundi sveitarstjórnar 15. febrúar 2023 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 31 Lagður fram tölvupóstur dagsettur 11. janúar 2023 þar sem forsætisráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 6/2023, "Grænbók um mannréttindi". Umsagnarfrestur er til og með 13.02.2023. Bókun fundar Afgreiðsla 31. fundar byggðarráðs staðfest á 10. fundi sveitarstjórnar 15. febrúar 2023 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 31 Lagður fram til kynningar tölvupóstur dagsettur 13. janúar 2023 þar sem fjármála- og efnahagsráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 251/2022, "Stafrænt pósthólf - nánari ákvæði um framkvæmd". Umsagnarfrestur er til og með 03.02.2023. Bókun fundar Afgreiðsla 31. fundar byggðarráðs staðfest á 10. fundi sveitarstjórnar 15. febrúar 2023 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 31 Lagður fram til kynningar tölvupóstur dagsettur 11. janúar 2023 frá Úrvinnslusjóði. Kynnt er gjaldskrá sjóðsins fyrir greiðslur til sveitarfélaga vegna sérstakrar söfnunar á umbúðum úr pappír, pappa, gleri, málm og plasti, sbr. 10. gr. laga nr. 55/2003, um meðhöndlun úrgangs. Bókun fundar Afgreiðsla 31. fundar byggðarráðs staðfest á 10. fundi sveitarstjórnar 15. febrúar 2023 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 31 Lagður fram til kynningar tölvupóstur dagsettur 13. janúar 2023 frá innviðaráðuneyti, þar sem vakin er athygli á að beiðni innviðaráðuneytisins frá 15. nóvember 2022, vinnur Byggðastofnun að gerð leiðbeininga og fyrirmynd varðandi það hvernig sveitarfélög geti útfært stefnu um þjónustustig til byggðarlaga utan stærstu byggðarkjarna viðkomandi sveitarfélags. Tilefnið er nýtt ákvæði í sveitarstjórnarlögum, nr. 138/2011, sem kveður á um að "sveitarstjórn skuli móta stefnu fyrir komandi ár og næstu þrjú á eftir um það þjónustustig sem sveitarfélagið hyggst halda uppi í byggðum og byggðarlögum fjarri stærstu byggðarkjörnum."
Af óviðráðanlegum orsökum hefur orðið töf á verkefninu en nú er ljóst að leiðbeiningar og fyrirmynd muni liggja fyrir í vor sem sveitarfélög geta nýtt sér til að móta stefnu fyrir næsta ár. Bókun fundar Afgreiðsla 31. fundar byggðarráðs staðfest á 10. fundi sveitarstjórnar 15. febrúar 2023 með níu atkvæðum.