Lögð fram fyrirspurn dagsett 13. febrúar 2023 frá Þorbirni R. Steingrímssyni varðandi verðlaun fyrir veidd vetrardýr (refir). Þorbjörn telur mikið vera af ref á svæðinu í kringum Sandfell en veiðimenn sýni þessu svæði lítinn áhuga. Þorbjörn hefur fengið veiðimann sem ekki er með samning við sveitarfélagið til að bera út hræ og reyna að vinna refina. Óskar hann eftir því að veiðimaðurinn fái greidd verðlaun frá sveitarfélaginu með sama hætti og ráðnir veiðimenn sveitarfélagsins. Landbúnaðarnefnd hafnar erindinu.
Landbúnaðarnefnd hafnar erindinu.