Fara í efni

Greiðslur Úrvinnslusjóðs til sveitarfélaga vegna sérstakrar söfnunar

Málsnúmer 2305074

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Skagafjarðar - 48. fundur - 17.05.2023

Lagður fram til kynningar tölvupóstur dagsettur 9. maí 2023 frá Úrvinnslusjóði varðandi greiðslur sjóðsins til sveitarfélaga vegna sérstakrar söfnunar.
Sérstök söfnun er skilgreind sem söfnun þar sem úrgangsflokkum er haldið aðskildum eftir tegund og eðli til að auðvelda tiltekna meðhöndlun, svo sem undirbúning fyrir endurnotkun eða endurvinnslu. Koma skal upp sérstakri söfnun á heimilisúrgangi þar sem það er nauðsynlegt til að uppfylla skilyrði þess að úrgangur sé endurnýttur í samræmi við forgangsröðun við meðhöndlun úrgangs. Jafnframt til að koma í veg fyrir að úrgangur blandist öðrum úrgangi eða öðrum efniviði með aðra eiginleika. Sérstök söfnun skal vera á a.m.k. eftirfarandi úrgangstegundum: pappír og pappa, málmum, plasti, gleri, lífúrgangi, textíl og spilliefnum.
Sérstök söfnun á pappír og pappa, plasti og lífúrgangi skal fara fram á sem aðgengilegastan hátt við íbúðarhús og hjá lögaðilum í þéttbýli. Söfnunin skal fara fram innan lóðar viðkomandi íbúðarhúss eða lögaðila. Þó er heimilt að hafa sameiginlega söfnun úrgangs fyrir aðliggjandi lóðir að því tilskildu að öll söfnun úrgangs færist af viðkomandi lóðum. Sérstök söfnun á spilliefnum skal fara fram í nærumhverfi íbúa.