Félagsmála- og tómstundanefnd - 13
Málsnúmer 2306007F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Skagafjarðar - 15. fundur - 28.06.2023
Fundargerð 13. fundar félagsmála- og tómstundanefndar frá 12. júní 2023 lögð fram til afgreiðslu á 15. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Sólborg Borgarsdóttir forseti kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Félagsmála- og tómstundanefnd - 13 Undir þessum lið sat Gunnar Gestsson fyrir hönd UMSS. Umræða um samstarfssamning Skagafjarðar og UMSS sem unnið er að endurnýja.
Nefndin felur frístundarstjóra að vinna drög að samningi. Bókun fundar Afgreiðsla 13. fundar félagsmála- og tómstundanefndar staðfest á 15. fundi sveitarstjórnar 28. júní 2023 með níu atkvæðum. -
Félagsmála- og tómstundanefnd - 13 Lögð fram beiðni um styrk vegna íþrótta- og leikjanámskeiða barna í Fljótum.
Félagsmála- og tómstundanefnd fagnar umsókninni og samþykkir að veita styrk að upphæð 150.000 krónur til íþrótta- og leikjanámskeiða fyrir börn í Fljótum. Bókun fundar Afgreiðsla 13. fundar félagsmála- og tómstundanefndar staðfest á 15. fundi sveitarstjórnar 28. júní 2023 með níu atkvæðum. -
Félagsmála- og tómstundanefnd - 13 Tekin fyrir styrkbeiðni frá frjálsíþróttakrökkum í Skagafirði vegna æfinga- og keppnisferðar til Svíþjóðar 2023.
Félagsmála- og tómstundarnefnd samþykkir að styrkja ferðina með kaupum á auglýsingu á peysur þeirra að fjárhæð 50.000 kr.
Nefndin óskar þeim góðs gengis. Bókun fundar Afgreiðsla 13. fundar félagsmála- og tómstundanefndar staðfest á 15. fundi sveitarstjórnar 28. júní 2023 með níu atkvæðum. -
Félagsmála- og tómstundanefnd - 13 Félagsmálastjóri kynnti vinnu við endurmat á reglum um þjónustu við fatlað fólk, reglurnar taka mið af Þjónustusamningi um þjónustu við fatlað fólk á Norðurlandi vestra sem tók gildi 1.janúar sl. Drög að uppfærðum reglum um skammtímadvöl fara til umfjöllunar og afgreiðslu hjá aðildarsveitarfélögum þjónustusamnings á næstu vikum. Bókun fundar Afgreiðsla 13. fundar félagsmála- og tómstundanefndar staðfest á 15. fundi sveitarstjórnar 28. júní 2023 með níu atkvæðum.
-
Félagsmála- og tómstundanefnd - 13 Farið yfir mönnunarstöðu á starfsstöðvum innan félagsþjónustunnar sumarið 2023. Bókun fundar Afgreiðsla 13. fundar félagsmála- og tómstundanefndar staðfest á 15. fundi sveitarstjórnar 28. júní 2023 með níu atkvæðum.
-
Félagsmála- og tómstundanefnd - 13 Lagt fram eitt mál, fært í trúnaðarbók. Bókun fundar Afgreiðsla 13. fundar félagsmála- og tómstundanefndar staðfest á 15. fundi sveitarstjórnar 28. júní 2023 með níu atkvæðum.