Fara í efni

Samráð; Grænbók um skipulagsmál

Málsnúmer 2307152

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Skagafjarðar - 57. fundur - 31.07.2023

Innviðaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 145/2023, „Grænbók um skipulagsmál“. Umsagnarfrestur er til og með 24.08. 2023.
Byggðarráð vísar málinu til umsagnar skipulagsnefndar.

Skipulagsnefnd - 31. fundur - 24.08.2023

Skipulagsnefnd felur Skipulagsfulltrúa að skila inn umsögn varðandi mikilvægi þess að tryggja aðkomu sveitarfélaga að skipulagi haf- og strandsvæða. Einnig þarf að skýra betur mörk ríkis og sveitarfélaga í skipulagsmálum í tengslum við nýlegar breytingar á skipulagslögum nr. 123/2010.