Umhverfis- og samgöngunefnd - 16
Málsnúmer 2308003F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Skagafjarðar - 16. fundur - 23.08.2023
Fundargerð 16. fundar umhverfis- og samgöngunefndar frá 16. júní 2023 lögð fram til afgreiðslu á 16. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Sólborg Borgarsdóttir forseti, kynnti fundargerð. Sveinn Þ Finster Úlfarsson og Einar E Einarsson kvöddu sér hljóðs.
-
Umhverfis- og samgöngunefnd - 16 Fyrir liggur tillaga frá verkfræðistofunni Stoð, Jóni Hauki Steingrímssyni frá Eflu verkfræðistofu og framkvæmdadeild Skagafjarðar að gerð mótfyllingar vegna hættu á jarðskriði neðan Brekkugötu á Sauðárkróki. Af öryggisástæðum þykir full ástæða til þess að tryggja það að hár kantur hlaupi ekki fram og valdi hættu á að mannvirki neðan við verði fyrir skemmdum. Þá liggur fyrir tillaga að því að fjarlægja lausan jarðveg ofan Lindargötu 15. Enn er verið að skoða möguleika á lausn við Skógargötu 6B.
Steinn Leó Sveinsson sviðstjóri Veitu- og framkvæmdasviðs og Atli Gunnar Arnórsson frá Stoð fóru yfir lausnir og mat á kostnaði við nauðsynlegar framkvæmdir til að fyrirbyggja hrun og tjón á mannvirkjum. Svæðið hlýtir allt ákvæðum laga nr. 87/2015 um verndarsvæði í byggð en þar er tekið skýrt tekið fram að engar framkvæmdir eru heimilar nema að fengnu leyfi sveitastjórnar.
Umhverfis- og samgöngunefnd vísar málinu til byggðarráðs og óskar eftir að framkvæmdirnar fái fjármögnun með viðauka við fjárhagsáætlun árins 2023 þannig að unnt sé að ráðast í þær síðsumars. Boðað verður til fundar með íbúum og eigendum þeirra húsa sem um ræðir.
Atli Gunnar Arnórsson verkfræðingur frá verkfræðistofunni Stoð sat fundinn undir þessum lið. Bókun fundar Afgreiðsla 16. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 16. fundi sveitarstjórnar 23. ágúst 2023 með níu atkvæðum. -
Umhverfis- og samgöngunefnd - 16 Vegagerðin hefur samþykkt að veita Skagafirði kr. 3.000.000,- styrk til vegagerðar af liðnum Styrkvegir í verkáætlun 2023 til verkefnisins styrkvegir í Skagafirði.
Sótt var um styrk í alls tólf verkefni. Vegagerðin hefur veitt sveitarfélaginu heimild til að ákveða hvernig fjármununum verði varið. Lagt er fram skjal með tillögu Landbúnaðarnefndar að útdeilingum fjárheimildarinnar.
Kolbeinsdalsafrétt, viðgerð á hættulegu vaði: 100 þ. kr. (verk síðan 2022 500 þ. kr.)
Unadalsafrétt, verk síðan 2022: 700 þ. kr.
Hrolleifsdalsafrétt, ræsagerð og lagfæringar: 500 þ. kr.
Flókadalsafrétt, lagfæring á verstu köflum: 300 þ. kr.
Þúfnavallaleið, árlegt viðhald: 200 þ. kr.
Haugakvíslarvegur, lagfæring á verstu köflum: 300 þ. kr.
Heiðarlandsvegur, ræsi og lagfæringar: 400 þ. kr.
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir tillögu landbúnaðarnefndar og felur Umhverfis- og landbúnaðarfulltrúa að annast eftirlit með framkvæmdinni. Bókun fundar Afgreiðsla 16. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 16. fundi sveitarstjórnar 23. ágúst 2023 með níu atkvæðum. -
Umhverfis- og samgöngunefnd - 16 Framkvæmdir við lokun og uppgræðslu á hluta jarðvegstipps við Borgargerði hafa staðið yfir í sumar. Búið er að jafna yfirborð og sá í þann hluta. Búast má við áframhaldandi framkvæmdum á svæðinu á meðan það er fyllt upp. Í aðalskipulagi er þetta skilgreint sem opið svæði en unnið verður áfram að hugmyndum um frekari nýtingu svæðisins.
Helga Gunnlaugsdóttir garðyrkjustjóri sat fundinn undir þessum lið. Bókun fundar Afgreiðsla 16. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 16. fundi sveitarstjórnar 23. ágúst 2023 með níu atkvæðum. -
Umhverfis- og samgöngunefnd - 16 Áformað er að vinna áfram við lagningu fráveitu og tengingu niðurfalla á Strandvegi. Ekki verður hægt að ganga endanlega frá yfirborði svæðisins fyrr en að þessum verkþætti er lokið. Unnið verður áfram að fegrun og ásýnd bæjarins meðal annars með því að klára þetta svæði.
Helga Gunnlaugsdóttir garðyrkjustjóri sat fundinn undir þessum lið. Bókun fundar Afgreiðsla 16. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 16. fundi sveitarstjórnar 23. ágúst 2023 með níu atkvæðum. -
Umhverfis- og samgöngunefnd - 16 Umhverfisstofnun bendir fulltrúum náttúruverndarnefnda og starfsmönnum sveitarfélaga á að ársfundur náttúruverndarnefnda, Umhverfisstofnunar og forstöðumanna náttúrustofa verður haldinn á Ísafirði þann 12. október 2023. Umhverfisstofnun hvetur sem flesta til að taka daginn frá en fundurinn verður blandaður stað- og fjarfundur.
Umhverfis- og samgöngunefnd hvetur starfsmenn og kjörna fulltrúa sem eiga þess kost að sitja ársfundinn að taka þátt. Bókun fundar Afgreiðsla 16. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 16. fundi sveitarstjórnar 23. ágúst 2023 með níu atkvæðum.