Fara í efni

Fræðslunefnd - 19

Málsnúmer 2309028F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Skagafjarðar - 18. fundur - 25.10.2023

Fundargerð 19. fundar fræðslunefndar frá 3. október 2023 lögð fram til afgreiðslu á 18. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Sólborg Borgarsdóttir forseti kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Fræðslunefnd - 19 Lagður fram fjárhagsrammi fyrir rekstrarárið 2024. Fyrsta tillaga að skiptingu fjármuna á milli stofnana fræðslumála yfirfarin. Skiptingin tekur mið af núverandi rekstri og aðstæðum. Ítrekað er að áætlunin mun taka breytingum samhliða áframhaldandi vinnu stafsmanna. Fræðslunefnd felur sviðsstjóra og starfsmönnum að vinna áfram að gerð fjárhagsáætlunar. Bókun fundar Afgreiðsla 19. fundar fræðslunefndar staðfest á 18. fundi sveitarstjórnar 13. september 2023 með níu atkvæðum.
  • .2 2309283 Nemendafjöldi
    Fræðslunefnd - 19 Við upphaf skólaársins 2023-2024 er heildarnemendafjöldi í leikskólum Skagafjarðar 245 og hefur fjölgað um 8 frá fyrra ári. Grunnskólabörn eru 562 talsins en voru 533 við upphaf síðasta skólaárs. Fjöldi nemenda í Tónlistarskóla Skagafjarðar eru 157. Bókun fundar Afgreiðsla 19. fundar fræðslunefndar staðfest á 18. fundi sveitarstjórnar 13. september 2023 með níu atkvæðum.
  • Fræðslunefnd - 19 Samningur um samstarf um fagháskólanám í leikskólafræði milli Háskóla Íslands, Háskólans á Akureyri og Skagafjarðar lagður fram til kynningar. Markmið samningsins er að stuðla að fjölgun nemenda í leikskólafræði og að fjölga menntuðum kennurum ásamt því að efla innra starf í leikskólum með því að tvinna saman nám og starf á vettvangi. Starfsfólki í leikskóla sem ekki hefur lokið framhaldsskóla gefst tækifæri til fagháskólanáms sem getur orðið brú yfir í háskólanám. Með samningnum lýsir Skagafjörður vilja til að leyfa starfsfólki að sinna náminu samhliða vinnu í leikskóla.
    Þrír starfsmenn Skagafjarðar leggja stund á fagháskólanám í leikskólakennarafræði.
    Bókun fundar Afgreiðsla 19. fundar fræðslunefndar staðfest á 18. fundi sveitarstjórnar 13. september 2023 með níu atkvæðum.
  • Fræðslunefnd - 19 Lögð fram hugmynd að útfærslu á tónlistarnámi fyrir nemendur í 1. og 2. bekk með því að bjóða upp á forskólanám að fyrirmynd frá Reykjanesbæ. Markmið með forskólanámi er fyrst og fremst að búa öll börn í 1. og 2 bekk sem best undir hljóðfæranám, sem og að kynna öllum börnum fyrir tónlistarnámi og þar með efla tónlistarnám almennt í Skagafirði. Forskólanám er hugsað sem samþætt byrjendanám í tónfræðagreinum. Hugmyndin er að nemendur fái alhliða þjálfun í tónlist í gegnum Forskólann og samhliða sé unnið með sköpun, hlustun, söng, hrynþjálfun, dans/hreyfingu og hljóðfæraleik.
    Nefndin felur starfsmönnum að skoða útfærsluna nánar, m.a. með tilliti til kostnaðar.
    Bókun fundar Afgreiðsla 19. fundar fræðslunefndar staðfest á 18. fundi sveitarstjórnar 13. september 2023 með níu atkvæðum.
  • Fræðslunefnd - 19 Grunnskólar Skagafjarðar hafa komið sér upp samræmdu verklagi þegar mæting nemenda er ábótavant og jafnframt er óskað eftir samvinnu við foreldra um að draga úr leyfisbeiðnum á skólatíma. Reglurnar gilda frá upphafi skólaárs 2023-2024. Reglurnar gilda annars vegar um fjarvistir vegna leyfa og veikinda nemenda og hins vegar um fjarvistir/seinkomur og brottrekstur úr kennslustundum. Tilgangurinn er að samhæfa reglur um skólasókn nemenda með því setja fram viðmið um skólasókn ásamt verklagsreglum um viðbrögð og eftirfylgni við ófullnægjandi skólasókn. Bókun fundar Afgreiðsla 19. fundar fræðslunefndar staðfest á 18. fundi sveitarstjórnar 13. september 2023 með níu atkvæðum.
  • Fræðslunefnd - 19 Sjálfsmatsskýrslur grunnskólanna fyrir skólaárið 2022-2023 lagðar fram til kynningar. Bókun fundar Afgreiðsla 19. fundar fræðslunefndar staðfest á 18. fundi sveitarstjórnar 13. september 2023 með níu atkvæðum.
  • Fræðslunefnd - 19 Tvö mál lögð fyrir og færð í trúnaðarbók. Bókun fundar Afgreiðsla 19. fundar fræðslunefndar staðfest á 18. fundi sveitarstjórnar 13. september 2023 með níu atkvæðum.