Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 16
Málsnúmer 2310029F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Skagafjarðar - 19. fundur - 15.11.2023
Fundargerð 16. fundar atvinnu- menningar- og kynningarnefndar frá 31. október 2023 lögð fram til afgreiðslu á 19. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Sólborg Borgarsdóttir forseti kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 16 Tekin fyrir gjaldskrá Héraðsbókasafns Skagfirðinga fyrir 2024. Atvinnu- menningar- og kynningarnefnd samþykkir fyrirliggjandi gjaldskrá sem hljóðar upp á 4,9% hækkun frá fyrra ári og vísar nefndin henni til byggðaráðs. Bókun fundar Afgreiðsla 16. fundar atvinnu- menningar- og kynningarnefndar staðfest á 19. fundi sveitarstjórnar 15. nóvember 2023 með níu atkvæðum.
-
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 16 Tekin fyrir gjaldskrá Héraðsskjalasafns Skagfirðinga fyrir 2024. Atvinnu- menningar- og kynningarnefnd samþykkir fyrirliggjandi gjaldskrá sem hljóðar upp á 4,9% hækkun frá fyrra ári. Nefndin vísar gjaldskránni til byggðaráðs til samþykktar. Bókun fundar Afgreiðsla 16. fundar atvinnu- menningar- og kynningarnefndar staðfest á 19. fundi sveitarstjórnar 15. nóvember 2023 með níu atkvæðum.
-
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 16 Tekin fyrir gjaldskrá Listasafns Skagfirðinga fyrir 2024. Atvinnu- menningar- og kynningarnefnd samþykkir fyrirliggjandi gjaldskrá sem hljóðar upp á 4,9% hækkun frá fyrra ári og vísar nefndin henni til byggðaráðs. Bókun fundar Afgreiðsla 16. fundar atvinnu- menningar- og kynningarnefndar staðfest á 19. fundi sveitarstjórnar 15. nóvember 2023 með níu atkvæðum.
-
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 16 Heba Guðmundsdóttir, verkefnastjóri í atvinnu-, menningar- og kynningarmálum hjá Skagafirði kynnti samantekt frá tveimur ráðstefnum um skemmtiferðaskip sem fulltrúar sveitarfélagsins tóku þátt í nú í haust. Ráðstefnurnar eru mikilvægur þáttur í að kynna Skagafjörð sem áfangastað fyrir skemmtiferðaskip. Næsta sumar eru 13 skemmtiferðaskipakomur skráðar á Sauðárkróki.
Bókun fundar Afgreiðsla 16. fundar atvinnu- menningar- og kynningarnefndar staðfest á 19. fundi sveitarstjórnar 15. nóvember 2023 með níu atkvæðum. -
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 16 Lögð fram til kynningar skýrsla um starfsemi Flugklasans Air66N fyrir tímabilið 1.maí - 25. október 2023.
Bókun fundar Afgreiðsla 16. fundar atvinnu- menningar- og kynningarnefndar staðfest á 19. fundi sveitarstjórnar 15. nóvember 2023 með níu atkvæðum. -
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 16 Málið áður á dagskrá á 14 fundi nefndarinnar. Magnús Barðdal verkefnastjóri fjárfestinga á SSNV sat á fundinn ásamt sveitarstjórn Skagafjarðar. Magnús Barðdal kynnti niðurstöður frá síðstu vinnustofu og stýrði umræðum um stefnumótun í atvinnumálum Skagafjarðar. Bókun fundar Afgreiðsla 16. fundar atvinnu- menningar- og kynningarnefndar staðfest á 19. fundi sveitarstjórnar 15. nóvember 2023 með níu atkvæðum.