Skagfirðingabraut 24 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi.
Málsnúmer 2310228
Vakta málsnúmerAfgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 27. fundur - 17.11.2023
Magnús Ingvarsson byggingarfræðingur sækir f.h. Framkvæmdasýslu - Ríkiseigna um leyfi fyrir breytingum og endurgerð á innangerð A-álmu, kjallara heimavistar FNV sem stendur á lóðinni númer 24 við Skagfirðingabraut. Einnig verður hluti lagna á lóð endurnýjaðar. Framlagðir uppdrættir gerðir af umsækjanda, uppdrættir í verki 22162, teikningar C41.001 A og C41.002 A, dagsettir 5. október 2023. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokkur 1 skv. gr. 1.3.2. í byggingarreglugerð. Byggingaráform samþykkt.