Byggðarráð Skagafjarðar - 69
Málsnúmer 2311001F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Skagafjarðar - 19. fundur - 15.11.2023
Fundargerð 69. fundar byggðarráðs frá 8. nóvember 2023 lögð fram til afgreiðslu á 19. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Sólborg Borgarsdóttir forseti kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 69 Sigurjón Þórðarson, framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra kom á fund byggðarráðs til að kynna fyrir byggðarráði fyrirhuguð áform stjórnvalda um breytt fyrirkomulag heilbrigðiseftirlits í landinu samkvæmt skýrslu starfshóps umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins. Bókun fundar Afgreiðsla 69. fundar byggðarráðs staðfest á 19. fundi sveitarstjórnar 15. nóvember 2023 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 69 Lagður fram tölvupóstur dagsettur 1. nóvember 2023 frá Magnúsi Jónssyni, veðurfræðingi, varðandi möguleika á að hefja sólskinsmælingar í Skagafirði. Magnús er að leita eftir styrkjum vegna kaupa og uppsetningu viðeigandi tækja hjá aðilum í Skagafirði þar með talið hjá sveitarfélaginu. Rekstur tækjanna verður í umsjá Veðurstofu Íslands.
Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að afla frekari gagna varðandi málið. Bókun fundar Afgreiðsla 69. fundar byggðarráðs staðfest á 19. fundi sveitarstjórnar 15. nóvember 2023 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 69 Lagður fram tölvupóstur dagsettur 11. október 2023 frá Rósönnu Valdimarsdóttur þar sem hún innir eftir því hvort möguleiki sé á að leigja eða kaupa fasteignina Lækjarbakka 5 í Steinsstaðahverfi.
Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að gera viðauka þar sem heimild verði veitt til þess að auglýsa og selja fasteignina Lækjarbakka 5. Bókun fundar Afgreiðsla 69. fundar byggðarráðs staðfest á 19. fundi sveitarstjórnar 15. nóvember 2023 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 69 Byggðarráð Skagafjarðar harmar þá ákvörðun að Pósturinn skuli alfarið hætta að dreifa fjölpósti frá og með 1. janúar nk. Þessi ákvörðun mun hafa mikil áhrif á starfsemi staðbundinna útgáfufyrirtækja á landsbyggðinni sem sjá fram á verulegar hækkanir á dreifingu útgáfuefnis. Er þessi skerðing enn ein viðbótin við minnkandi þjónustu Póstsins, fækkun pósthúsa, skerðingu opnunartíma þeirra o.fl. sem birtist m.a. í því að Alþjóðapóstsambandið telur í nýlegri skýrslu um póstþróunarstig í heiminum fyrir árið 2022 að póstþjónusta á Íslandi sé sú versta á meðal allra Evrópuþjóða.
Byggðarráð Skagafjarðar skorar á stjórn og stjórnendur Póstsins að vinna að markvissum aðgerðum til að hækka þjónustustig Póstsins, m.a. með mikilli fjölgun póstboxa og að slíkum boxum verði komið fyrir á öllum þéttbýlisstöðum á landinu. Póstbox eru eingöngu að finna á Sauðárkróki í dag, en ekki öðrum þéttbýlisstöðum Skagafjarðar. Vinna þarf að áreiðanlegri þjónustu póstsins og hraðari og markvissari þjónustu sem kemur til móts við þarfir atvinnulífs og íbúa um land allt. Byggðarráð skorar jafnframt á stjórnvöld að vinna að skjótum lausnum til að styðja við starfsemi útgáfufyrirtækja og staðbundinna fréttamiðla á landsbyggðinni sem sjá fram á gríðarlegar verðhækkanir á dreifingu eftir rétt rúma 50 daga. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að gera bókun byggðarráðs að bókun sveitarstjórnar, sem hljóðar þannig:
Sveitarstjórn Skagafjarðar harmar þá ákvörðun að Pósturinn skuli alfarið hætta að dreifa fjölpósti frá og með 1. janúar nk. Þessi ákvörðun mun hafa mikil áhrif á starfsemi staðbundinna útgáfufyrirtækja á landsbyggðinni sem sjá fram á verulegar hækkanir á dreifingu útgáfuefnis. Er þessi skerðing enn ein viðbótin við minnkandi þjónustu Póstsins, fækkun pósthúsa, skerðingu opnunartíma þeirra o.fl. sem birtist m.a. í því að Alþjóðapóstsambandið telur í nýlegri skýrslu um póstþróunarstig í heiminum fyrir árið 2022 að póstþjónusta á Íslandi sé sú versta á meðal allra Evrópuþjóða.
Sveitarstjórn Skagafjarðar skorar á stjórn og stjórnendur Póstsins að vinna að markvissum aðgerðum til að hækka þjónustustig Póstsins, m.a. með mikilli fjölgun póstboxa og að slíkum boxum verði komið fyrir á öllum þéttbýlisstöðum á landinu. Póstbox eru eingöngu að finna á Sauðárkróki í dag, en ekki öðrum þéttbýlisstöðum Skagafjarðar. Vinna þarf að áreiðanlegri þjónustu póstsins og hraðari og markvissari þjónustu sem kemur til móts við þarfir atvinnulífs og íbúa um land allt. Sveitarstjórn Skagafjarðar skorar jafnframt á stjórnvöld að vinna að skjótum lausnum til að styðja við starfsemi útgáfufyrirtækja og staðbundinna fréttamiðla á landsbyggðinni sem sjá fram á gríðarlegar verðhækkanir á dreifingu eftir rétt rúma 50 daga.
Tillagan borin upp til afgreiðslu og samþykkt með níu atkvæðum.
Afgreiðsla 69. fundar byggðarráðs staðfest á 19. fundi sveitarstjórnar 15. nóvember 2023 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 69 Lagðar fram reglur um afslátt af fasteignaskatti 2024.
Byggðarráð samþykkir að hækka viðmiðunarfjárhæðir varðandi tekjumörk um 6% frá reglum ársins 2023 og að hámarksafsláttur verði óbreyttur á milli ára þ.e. 80.000 kr. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Reglur um afslátt af fasteignaskatti 2024, síðar á fundinum. Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 69 Lagður fram yfirfarinn samningur um rekstur undæmisráðs Landsbyggða ásamt 11 fundargerðum valnefndar og fundargerð um endurskoðun á samningi um umdææmisráð. Samningurinn er með gildistíma frá 1.janúar 2023 til og með 31.desember 2027. Endurskoðunarákvæði í samningi gerir ráð fyrir endurskoðun samnings fyrir 31.desember 2023, sé þörf á.
Byggðarráð gerir ekki athugasemdir við samninginn og vísar honum til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Sameiginlegt umdæmisráð barnaverndar á landsvísu, síðar á fundinum. Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 69 Lögð fram gjaldskrá Héraðsbókasafns Skagfirðinga fyrir árið 2024, sem vísað var til byggðarráðs frá 16. fundi atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar, þann 31. október 2023.
Byggðarráð samþykkir framlagða gjaldskrá og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Gjaldskrá Héraðsbókasafn Skagfirðinga 2024, síðar á fundinum. Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 69 Lögð fram gjaldskrá Héraðsskjalasafns Skagfirðinga fyrir árið 2024, sem vísað var til byggðarráðs frá 16. fundi atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar, þann 31. október 2023.
Byggðarráð samþykkir framlagða gjaldskrá með áorðnum breytingum og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Gjaldskrá Héraðsskjalasafn Skagfirðinga 2024, síðar á fundinum. Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 69 Lögð fram gjaldskrá Listasafns Skagfirðinga fyrir árið 2024, sem vísað var til byggðarráðs frá 16. fundi atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar, þann 31. október 2023.
Byggðarráð samþykkir framlagða gjaldskrá og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Gjaldskrá Listasafn Skagfirðinga 2024, síðar á fundinum. Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 69 Lögð fram gjaldskrá fyrir hunda- og kattahald fyrir árið 2024 sem vísað var til byggðarráðs frá 18. fundi umhverfis- og samgöngunefndar þann 13.október 2023.
Byggðarráð samþykkir framlagða gjaldskrá fyrir árið 2024 og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar. Byggðarráð felur jafnframt umhverfis- og samgöngunefnd að taka gjaldskrána til endurskoðunar á nýju ári. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Gjaldskrá hunda- og kattahald 2024, síðar á fundinum. Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 69 Lögð fram gjaldskrá Húss frítímans fyrir árið 2024 sem vísað var til byggðarráðs frá 17. fundi félagsmála- og tómstundanefndar þann 1. nóvember 2023.
Byggðarráð samþykkir framlagða gjaldskrá Húss frítímans fyrir árið 2024 og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Gjaldskrá Hús frítímans 2024, síðar á fundinum. Samþykkt samhljóða.