Byggðarráð Skagafjarðar - 72
Málsnúmer 2311023F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Skagafjarðar - 20. fundur - 13.12.2023
Fundargerð 72. fundar byggðarráðs frá 22. nóvember 2023 lögð fram til afgreiðslu á 20. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Sólborg Borgarsdóttir forseti kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 72 Fjallað um mögulegar nýframkvæmdir 2024. Undir þessum dagskrárlið komu til fundarins Ingvar Páll Ingvarsson og Jón Örn Berndsen frá veitu- og framkvæmdasviði. Bókun fundar Afgreiðsla 72. fundar byggðarráðs staðfest á 20. fundi sveitarstjórnar 13. desember 2023 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 72 Lögð fram samþykkt um gatnagerðargjald, stofngjald fráveitu og byggingarleyfis- og þjónustugjöld í sveitarfélaginu Skagafirði, með gildistíma frá 1. janúar 2024. Byggðarráð samþykkir framlagða samþykkt og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Gjaldskrá gatnagerðargjald, stofngjald fráveitu, byggingarleyfis og þjónustugjöld 2024, síðar á fundinum. Samþykkt samhljóða.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 72 Lögð fram gjaldskrá vegna lausagöngu búfjár sem samþykkt var á 13. fundi landbúnaðarnefndar 13. nóvember 2023 og vísað þaðan til byggðarráðs.
Byggðarráð samþykkir gjaldskrána og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Gjaldskrá vegna lausagöngu búfjár, síðar á fundinum. Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 72 Lögð fram gjaldskrá vegna kauptaxta veiðimanna refa og minka en gjaldskráin var samþykkt á 13. fundi landbúnaðarnefndar 13. nóvember 2023 og vísað þaðan til byggðarráðs.
Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að afla frekari upplýsinga frá umhverfis- og landbúnaðarfulltrúa. Bókun fundar Afgreiðsla 72. fundar byggðarráðs staðfest á 20. fundi sveitarstjórnar 13. desember 2023 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 72 Lagt fram erindi frá Friðbirni Ásbjörnssyni framkvæmdastjóra FISK Seafood ehf., dags. 22. nóvember 2023, þar sem sveitarfélaginu Skagafirði er boðinn forkaupsréttur að Lundey SK-4.
Byggðarráð samþykkir að nýta ekki forkaupsréttinn. Bókun fundar Afgreiðsla 72. fundar byggðarráðs staðfest á 20. fundi sveitarstjórnar 13. desember 2023 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 72 Lagt fram til umsagnar frumvarp til laga um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, 478. mál, frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis. Umsagnarfrestur er til 30. nóvember nk.
Bókun fundar Afgreiðsla 72. fundar byggðarráðs staðfest á 20. fundi sveitarstjórnar 13. desember 2023 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 72 Lagt fram til umsagnar frumvarp til laga um skatta og gjöld (gistináttaskattur, áfengisgjald o.fl.), 468. mál, frá efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis. Umsagnarfrestur er til 1. desember nk. Bókun fundar Afgreiðsla 72. fundar byggðarráðs staðfest á 20. fundi sveitarstjórnar 13. desember 2023 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 72 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 230/2023, "Landsáætlun um innleiðingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks". Umsagnarfrestur er til og með 23.11.2023.
Byggðarráð Skagafjarðar fagnar því að til umfjöllunar sé á Alþingi þingsályktun sem fjallar um þjónustu og þróun réttinda fatlaðs fólks. Um afar mikilvægt mál er að ræða.
Ekki er síður brýnt áður en Alþingi lýkur umfjöllun sinni um þingsályktunartillöguna að tryggt sé að málið sé allt unnið í nánu samstarfi við sveitarfélögin í landinu sem bera eins og málum er skipað í dag ríka ábyrgð í þjónustu við fatlað fólk. Málefni fatlaðs fólks voru flutt frá ríki til sveitarfélaga 2011. Þá var samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks fullgiltur af hálfu Íslands 2016 en fullgilding hans kallaði m.a. á breytingar á lögum um þjónustu við fatlað fólk. Lög um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir tóku gildi 1. október 2018 og leystu af hólmi eldri lög frá 1992.
Í dag liggur fyrir að veruleg vanfjármögnun er af hálfu ríkisins þegar kemur að þjónustu við fatlað fólk og er um fleiri milljarða króna að ræða á ári hverju. Í sveitarstjórnarlögum er lögð sú skylda á ríkið að kostnaðarmeta þau verkefni sem sveitarfélögum er falið að sinna með lögum enda megi ætla að um fjárhagsleg áhrif á sveitarfélögin verði að ræða. Þjónustan innan þessa mikilvæga málaflokks er stórlega vanfjármögnuð af hálfu ríksins og hefur slæm áhrif á sjálfbærni sveitarfélaganna í rekstri. Ljóst er að lítill ávinningur er af því fyrir ríkið og samfélagið í heild að sveitarfélög reki verkefni með halla eða taki að sér verkefni sem ekki eru fjármögnuð.
Í þingsályktunartillögunni er að finna fjölmargar aðgerðir og verkefni sem að óbreyttu verða unnin af hálfu sveitarfélaganna í landinu. Fram kemur í tillögunni að stefnt sé að því að frumvarp um lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks verði lagt fram á yfirstandandi kjörtímabili og til undirbúnings því hafi verið skipaður vinnuhópur fulltrúa fjölmargra ráðuneyta og hagsmunasamtaka fatlaðs fólks. Athygli vekur að enginn fulltrúi er tilgreindur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Byggðarráð Skagafjarðar lýsir yfir undrun sinni á þeirri tilhögun og ítrekar nauðsyn náins samráðs allra hlutaðeigandi aðila og að fjármögnun allra aðgerða sem innleiða á séu kostnaðarmetnar og tryggðar að fullu. Það liggur ekki fyrir í þessu máli. Bókun fundar Afgreiðsla 72. fundar byggðarráðs staðfest á 20. fundi sveitarstjórnar 13. desember 2023 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 72 Lagt fram til kynningar yfirlit yfir ábendingar sem hafa borist í gegnum ábendingagátt sveitarfélagsins sl. mánuð og viðbrögð við þeim. Bókun fundar Afgreiðsla 72. fundar byggðarráðs staðfest á 20. fundi sveitarstjórnar 13. desember 2023 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 72 Lagður fram til kynningar tölvupóstur frá formanni Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 17. nóvember 2023, þar sem upplýst er um vinnu sem unnin hefur verið af hálfu Sambands íslenskra sveitarfélaga vegna stöðunnar sem upp er komin í Grindavík. Bókun fundar Afgreiðsla 72. fundar byggðarráðs staðfest á 20. fundi sveitarstjórnar 13. desember 2023 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 72 Lagður fram til kynningar póstur frá Jafnréttisstofu, dags. 10. nóvember 2023, þar sem vakin er athygli á mikilvægi kynja- og jafnréttissjónarmiða við stefnumótun og ákvarðanatöku í breytingum á fyrirkomulagi leikskóla. Bókun fundar Afgreiðsla 72. fundar byggðarráðs staðfest á 20. fundi sveitarstjórnar 13. desember 2023 með níu atkvæðum.